Fara í efni

Starfsreglur um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna

Sveitarstjórn Norðurþings samþykkti þann 30. apríl sl. starfsreglur um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Starfsreglurnar eru byggðar á lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021. Þær voru unnar í tengslum við innleiðingu farsældar í Norðurþingi og marka mikilvægan áfanga í því að festa verklag, hlutverk og ábyrgð í sessi þegar kemur að þjónustu við börn og fjölskyldur.

Markmið starfsreglnanna er að tryggja að börn og foreldrar, sem á þurfa að halda, hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Með reglunum er lögð áhersla á að brugðist sé við þegar þörf er á þjónustu og að stuðlað sé að samfelldri, snemmtækri og heildstæðri þjónustu þar sem hagsmunir barna eru hafðir að leiðarljósi.

Starfsreglurnar eru mikilvægur liður í því að efla farsæld barna og umgjörð um þjónustu við börn og fjölskyldur í Norðurþingi.

Starfsreglurnar má nálgast HÉR