Fara í efni

Sumarfrístund 2025

Nú hefur verið opnað fyrir skráningu í sumarfrístund 2025 sem er frá 08:00-16:00 virka daga, opið er í hádeginu.

Hvetjum fólk til að skrá börnin tímanlega!
- Skráningarfrestur fyrir viku 1 til 4 er föstudagurinn 30 maí. (árg. 2015-2018)
- Skráningarfrestur fyrir viku 5 og 6 er föstudagurinn 27. júní. (árg. 2015-2019)

Verð fyrir viku í sumarfrístund er 15.000 kr.-. Vikan er ódýrari ef lokað er einhvern dag vikunnar (t.d. 17.júní, frídag verslunarmanna eða þess háttar)
Ef allar 6 vikurnar eru bókaðar í einu er 11.700 kr.- afsláttur af heildarverðinu. Athugið sérstakan valmöguleika fyrir það.

Borga þarf hverja viku fyrir sig, eða allar 6 vikurnar í einu.

Vakin er athygli á því að ef á að nýta frístundastyrkinn er einungis hægt að ganga frá greiðslu á einum valmöguleika í einu þar sem kerfið býður ekki upp á annað.

Hafa þarf samband við íþrótta- og tómstundafulltrúa í gegnum netfangið stefans@nordurthing.is til að fá afslátt fyrir einstæða og 100% systkinaafslátt fyrir þriðja barn.

ATH. árgangur 2019 getur skráð sig eftir sumarfrí í ágúst (vika 5 og 6)

Allar upplýsingar og dagskrá er hægt að nálgast á vef sumarfrístundar
Smellið hér fyrir nánari upplýsingar