Fara í efni

Sumarfrístund í Borginni 2024

Í sumar verður boðið upp á dagþjónustu fyrir börn og ungmenni á aldrinum 10-18 ára með fjölþættar stuðningsþarfir (einnig börn sem hafa lokið 4. bekk). Opið verður frá skólalokum 5. júní og þar til skóli hefst á ný í haust. Opið verður alla virka daga frá 10 – 16. En lokað verður fyrstu tvær vikurnar í júlí, frá mánudeginum 1. júlí og opnar aftur mánudaginn 12. júlí.

Eins og síðustu sumur þá mun vera boðið uppá á fjölbreytt skapandi starf og útiveru sem verður unnin í samvinnu við börnin - eftir óskum og áhugasviðum þeirra. Við nýtum það sem er í boði á Húsavík og nærumhverfi á sumrin, s.s. ýmsar smiðjur og námskeið, vettvangsferðir, heimsóknir og fleira. Spennandi sumardagskrá er í vinnslu og allar hugmyndir velkomnar.
Starfsmannahópur mun halda áfram að vinna í sumar, þ.e Marta, Karol, Henný og Iris.

Fljótlega mun opna fyrir umsóknir inná vefsíðu Norðurþings, en frábært væri að heyra frá foreldrum/forráðamönnum fyrir mánudaginn 8. apríl hvort þið stefnið á að nýtja ykkur þessa þjónustu í sumar eða þær vangaveltur sem þið hafið að svo stöddu.

Hlakka til að heyra frá ykkur,
Iris M. Waitz, iðjuþjálfi.
Forstöðumaður í Borginni frístund og skammtímadvöl.
Símanúmer 867-9045 og netfang irisw@nordurthing.is