Fara í efni

Sveitarstjóri á Raufarhöfn og Kópaskeri 17. ágúst

Katrín sveitarstjóri verður við vinnu á Raufarhöfn miðvikudaginn 17. ágúst frá kl. 9-14. Þá ætlar hún að vera á Kópaskeri frá kl. 15 þann dag og sitja íbúafund um þróun samfélags- og menningarhús á Kópaskeri fer fram í Skólahúsinu kl. 17-19.

Íbúar og forsvarsmenn fyrirtækja á svæðinu eru hvött til að nýta sér tækifærið og hitta á Katrínu þennan dag. Hægt er að panta sérstaka viðtalstíma með því að senda póst á katrin@nordurthing.is