Sveitarstjórnarkosningar 2026
02.03.2026
Tilkynningar
Sveitarstjórnarkosningar verða laugardaginn 16. maí 2026.
Athygli er vakin á því að skilafrestur framboða vegna sveitarstjórnarkosninga 2026 er á hádegi 10. apríl 2026.
Mælst er til þess að framboð nýti rafrænt meðmælendakerfi fyrir söfnun meðmæla. Kerfið opnar 3. mars, sjá nánari upplýsingar á vef Landskjörstjórnar: https://island.is/v/sveitarstjornarkosningar-2026/medmaelasoefnun
Til einföldunar mælir Landskjörstjórn með að oddvitar framboða skrái sig fyrir meðmælendalistum á island.is
Ef spurningar vakna hafið samband við yfirkjörstjórn á netfangið kjorstjorn@nordurthing.is.
Nánari upplýsingar um skil á framboðum verða auglýst síðar.