Þjóðaratkvæðisgreiðsla um aðildarviðræður við ESB – Kjörstaðir og kjördagur

Þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við ESB fer fram laugardaginn 29. ágúst 2026.
Í þjóðaratkvæðagreiðslunni svara kjósendur einni spurningu með því að merkja X við já eða nei: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“
Kjörskránna má nálgast á skrifstofum sveitarfélagsins á opnunartíma.
Utankjörfundaratkvæðisgreiðla
Utankjörfundaratkvæðisgreiðla fer fram hjá sýslumanni en einnig er verður hægt að kjósa utan kjörfundar á Kópaskeri og Raufarhöfn frá og með 17. ágúst á eftirfarandi dögum.
Raufarhöfn - Skrifstofa Norðurþings, Aðalbraut 23
Alla virka daga frá 17. ágúst - 28.ágúst frá klukkan 10:00-12:00.
Kópasker - Skrifstofa Norðurþings, Bakkagötu 10
17. ágúst frá 10:00-14:00
20. ágúst frá 10:00-14:00
26. ágúst frá 10:00-14:00
28.ágúst frá . 10:00-14:00
Kjörstaðir á kjördag
- Kjördeild I og II - Borgarhólskóli Húsavíkur
Fyrir íbúa Húsavíkur og Reykjahverfis. Kjörstaður er opinn 09:00-22:00. Gengið er inn að austanverðu (gegnt FSH og Íþrótthöllinni).
- Kjördeild III - Skúlagarður
Fyrir íbúa í Kelduhverfi. Kjörstaður er opinn 10:00-18:00.
- Kjördeild IV - Skólahúsið á Kópaskeri
Fyrir íbúa á Kópaskeri og Öxarfirði. Kjörstaður er opinn 10:00-18:00.
- Kjördeild V - Ráðhúsið á Raufarhöfn
Fyrir íbúa á Raufarhöfn. Kjörstaður er opin frá 10:00-18:00
Svör við mikilvægum spurningum varðandi þjóðaratkvæðagreiðsluna, aðildarviðræður og Evrópusambandið má finna inn á www.thjodaratkvaedi.is
þú getur flett upp kennitölunni þinni hér til að sjá hvort þú sért á kjörskrá í þjóðaratkvæðisgreiðslu og hvar þú átt að kjósa.