Fara í efni

Þorsteinn frá karlmennskunni hélt fyrirlestur

Þorsteinn V. Einarsson frá @karlmennskan hefur verið á ferðinni á Húsavík síðustu daga. Þorsteinn, sem er bæði kennari og kynjafræðingur, heldur úti vefnum www.karlmennskan.is þar sem hann fjallar um karlmennsku í samfélaginu. Hann hélt fyrirlestur í FSH,  Borgarhólsskóla og í stjórnsýsluhúsi Norðurþings á Húsavík. 

Fyrirlestur hans fjallaði um karlmennskuna og birtingamyndir hennar í samfélaginu.
Þorsteinn talaði um hvernig og hvers vegna jákvæð karlmennska styður við jafnrétti og hvernig skaðleg karlmennska bitnar á strákum og körlum. Í fyrirlestrinum gaf hann áheyrendum hugmyndir um hvað einstaklingar geta gert til að hafa jákvæð áhrif á líf okkar og samferðafólks út frá hugmyndum um karlmennsku.

Við bendum á vefsíðu Þorsteins, karlmennskan.is, þar sem hægt er að nálgast fræðsluefni, hlaðvörp og fleira.