Þrjú verkefni á Norðurlandi eystra hljóta styrk úr Byggðaáætlun – samtals 38 milljónir króna
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur úthlutað styrkjum að upphæð 170 milljónum kr. til fjórtán fjölbreyttra verkefna til að efla viðkvæmar byggðir landsins. Framlag til styrkjanna kemur af byggðaáætlun (aðgerð C.1 – Sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða) en alls bárust 28 umsóknir fyrir um 756 m.kr. Þetta er hæsta úthlutun úr þessari aðgerð á tímabili gildandi byggðaáætlunar.
Verkefni sem talin eru hafa varanleg áhrif, eru atvinnuskapandi og hvetja til nýsköpunar eru í forgangi. Sérstök áhersla er lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf.
Samtök Sveitafélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eysta (SSNE) hlutu styrk fyrir þrjú verkefni frá svæðinu en þau eru:
- Styrkupphæð: 8 m.kr.
Ráðhúsið á Raufarhöfn – atvinnu- og samfélagssetur
- Styrkupphæð: 10 m.kr.
Framhaldsstyrkur til að skapa aðstöðu til fjölbreyttari atvinnustarfsemi á staðnum, laða að frumkvöðla og nema, efla menntunarstig þorpsins og styrkja stoðir þess sem fyrir er. Ætlunin er ljúka þeim framkvæmdum sem eftir standa í atvinnu- og samfélagssetrinu.
- Styrkupphæð: 20 m.kr.
Verkefnið styður við uppbyggingu á norðausturhorninu með því að greina helstu tækifæri, móta skýra framtíðarsýn fyrir innviðaþróun og aukna verðmætasköpun með nýjum atvinnutækifærum. Verkefnið fylgir eftir nýlegu samkomulagi sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra undirritaði við Landsnet og Rarik um aukna afhendingargetu og afhendingaröryggi raforku á svæðinu.