Fara í efni

Tillaga að breytingu á starfsleyfi - Röndin á Kópaskeri

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að breytingu á starfsleyfi Fiskeldis Austfjarða hf. (áður Rifós hf.), Röndinn á Kópaskeri. Um er að ræða aukningu á umfangi úr allt að 400 tonna lífmassa í allt að 2.700 tonna lífmassa á hverjum tíma.

Framkvæmdin var tilkynnt til Skipulagsstofnunar sem gaf frá sér álit vegna mats á umhverfisáhrifum þann 11. júlí 2022. Að mati Skipulagsstofnunar munu helstu áhrif vegna framkvæmdarinnar verða vegna aukinnar vatnstöku og áhrifa á fuglalíf vegna fækkunar varpsvæða, en með mótvægisaðgerðum sé hægt að draga úr slíkum áhrifum.

Að mati Umhverfisstofnunar eru þeir þættir er snúa að starfsleyfinu vegna losunar næringarefna bæði á föstu og uppleystu formi. Áætluð losun næringarefna verður undir þeim mörkum sem almennt er miðað við varðandi losun í sjó með þeirri hreinsun sem fyrirtækið hyggst notast við. Hægt er að endurskoða fyrirkomulag fráveitu frá eldinu og gera auknar kröfur bendi mælingar til þess að hreinsun sé ábótavant. Helstu breytingar er að finna í hornklofum í auglýstri tillögu.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202203-132. Umsagnir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 7. nóvember. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Tengd skjöl:
Umsókn um starfsleyfi
Tillaga að breytingu á starfsleyfi Fiskeldis Austfjarða hf.
Álit Skipulagsstofnunar
Vöktunaráætlun
Mat á áhrifum losunar á vatnshlot