Fara í efni

Tillaga að deiliskipulagi iðnaðarsvæðisins á Bakka – 3. áfangi

Skipulags- og framkvæmdaráð Norðurþings, samþykkti á fundi sínum þann 20. október 2026 að kynna tillögu að deiliskipulagi 3. áfanga iðnaðarsvæðis á Bakka skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið er 13,18 ha að flatarmáli, austan þjóðvegar og norðan spennivirkis Landsnets. Í tillögunni eru skilgreindar tvær nýjar iðnaðarlóðir. Þar er nú horft til uppbyggingar gagnavers.

Skipulagstillagan innifelur skipulagsuppdrátt (A2) og greinargerð með umhverfisskýrslu.

Tillaga þessi er nú til kynningar í skipulagsgátt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar og heimasíðu Norðurþings (nordurthing.is). Kynningartími skipulagsins er frá 26. október 2026 til 7. desember 2026. Þeim sem kynnu að hafa ábendingar eða athugasemdir er bent á að koma þeim á framfæri við Norðurþing fyrir 7. desenber 2026. Tekið verður á móti ábendingum á skipulagsgátt (skipulagsgatt.is) undir málsnúmeri 260/2026.


Lesa greinargerð - Deiluskipulag iðnaðarsvæðisins á Bakka 3. áfangi


Smellið á mynd til  að skoða í betri upplausn