Fara í efni

Tímabundnar myndavélar í Húsavíkurfjöru

Tímabundnar myndavélar verða í Húsavíkurfjöru til föstudagsins 16. maí en þær eru á vegum alþjóðlega rannsóknarverkefnisins ICEBERG sem er fjármagnað af Evrópusambandinu. Myndavélarnar munu taka myndir á hverri klukkustund með það að markmiði að vakta það plast og annað rusl sem rekur á land í fjörunni.

Myndavélarnar verða teknar niður í lok dags þann 16. maí.