Tímabundnar stöður umsjónarkennara í Borgarhólsskóla
16.10.2026
Störf í boði
Tímabundnar stöður umsjónarkennara í Borgarhólsskóla
Borgarhólsskóli óskar eftir afleysingu umsjónarkennara á yngsta stigi. Um er að ræða tvær tímabundnar stöður út skólaárið vegna fæðingarorlofs. Annarsvegar umsjónarkennara í 1.bekk og hinsvegar umsjónarkennara í 2.bekk, hvoru tveggja er 100% staða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að annast kennslu nemenda.
- Að standa vörð um velferð og nám barnanna.
- Að þróa í samvinnu við samstarfsmenn framsækið og faglegt starf með áherslu á fjölbreyttar námsnálganir.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf sem grunnskólakennari
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði
- Þekking og reynsla af Byrjendalæsi stór kostur
- Reynsla af kennslu í grunnskóla mjög æskileg
- Reynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum
- Löngun til að vinna í teymi
- Hæfni í samskiptum
- Frumleiki og sjálfstæði
- Þekking á jákvæðum aga er kostur
Frekari upplýsingar veitir Þórgunnur Reykjalín skólastjóri: threyk@borgarholsskoli.is
Umsóknarfrestur er til 31.10.2026
Sótt er um hér í gegnum 50skills