Fara í efni

Tónlistaskóli Húsavíkur fékk frábæra heimsókn

Birna Eyfjörð Þorsteinsdóttir tónlistarkona kom til okkar og var með masterclass fyrir nemendur unglingastigs Borgarhólsskóla. Þar var hún að kynna fyrir nemendum alla þá möguleika sem í tónlistinni býr og hvernig ein lítil hugmynd getur orðið að lagi eða stærra verki og hvernig vinna má með hugmyndir í tölvu og forritum sem í boði eru í dag.

Þetta var afar skemmtilegt og hvetjandi fyrir nemendur og var henni vel tekið.