Tónlistaskóli Húsavíkur með fulltrúa á uppskeruhátíð tónlistarskóla á norðurlandi
14.04.2026
Fréttir
Nótan uppskeruhátíð tónlistarskólanna á norðurlandi
Tónlistarskólar á norðurlandi héldu sína uppskeruhátíð Nótuna í gær sunnudag í Laugaborg. Tónlistaskóli Húsavíkur átti þar þrjá fulltrúa það voru þær Bryndís Edda Benediktsdóttir, Sóley Ósk Bjarkadóttir og Svanhildur Sól Sigurbjarnadóttir. Þær ásamt öllum þeim sem komu fram stóðu sig afar vel og var dagskráin vönduð og flott.
Óskum nemendum og kennurum til hamingju með árangurinn.