Fara í efni

Tvær stöður kennara við Grunnskóla Raufarhafnar

Grunnskóli Raufarhafnar er samrekinn leik-og grunnskóli með alls um 11 nemendur þar sem uppeldisstefnan Jákvæður agi er höfð að leiðarljósi. Skólinn er í samstarfi við Rif rannsóknarstöð sem hefur aðsetur innan skólans. Einnig er samstarf við Öxarfjarðarskóla sem er í 64 km fjarlægð frá Raufarhöfn. Nemendum grunnskólans er ekið einu sinni í viku í Öxarfjarðarskóla þar sem þeir fá kennslu í list- og verkgreinum, íþróttum auk tónlistarkennslu á vegum Tónlistarskóla Húsavíkur.

Tvær stöður, annars vegar umsjónarkennara og hins vegar kennara samrekins leik- og grunnskóla Raufarhafnar eru lausar til umsóknar. Samtals er um eitt og hálft stöðugildi að ræða. Laun eru samkvæmt kjarasamningi.

Leitað er að öflugum kennurum sem hafa metnað og búa yfir hæfni til að skipuleggja krefjandi og framsækið skólastarf í samvinnu við skólastjóra, starfsfólk, foreldra og nemendur. Jafnframt að styrkja stöðu skólans í nærumhverfinu með samstarfi við Öxarfjarðarskóla og aðrar stofnanir. Umsjónarkennari mun starfa sem staðgengill skólastjóra og sinna ýmsum stjórnunarverkefnum í fjarveru hans. Kennarastöðurnar heyra beint undir skólastjóra.

Viðkomandi þurfa að geta hafið störf í byrjun ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjónarkennsla og kennsla nemenda í 1.-10. bekk; kennsla í íslensku, stærðfræði, erlendum tungumálum, samfélags- og náttúrufræðigreinum o.fl.
  • Þátttaka í þróun skólastarfs til framtíðar í samræmi við skólastefnu sveitarfélagsins, aðalnámskrá leik- og grunnskóla og lög um leik- og grunnskóla
  • Þátttaka í starfsþróun og vinnutilhögun.
  • Óskað er sérstaklega eftir kennurum sem eru áreiðanlegir, hafa leiðtogahæfni, sýna frumkvæði, eru ábyrgir, skapandi og lausnamiðaðir.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu í leik- og grunnskóla.
  • Kennslureynsla á grunnskólastigi og reynsla af umsjónarkennslu.
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði.
  • Kennslureynsla af samkennslu árganga er mikilvæg.
  • Mikil samskiptahæfni, góðir skipulagshæfileikar, sjálfstæði, sveigjanleiki og aðlögunarhæfni.
  • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg.
  • Reynsla af þátttöku í þróun á grunnskólastarfi er æskileg.
  • Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða diplóma að lágmarki) á sviði uppeldis- og menntunarfræða, stjórnunar eða sambærilegra greina er kostur.

Leiguhúsnæði er í boði á staðnum.

Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2024.

Umsóknum skal skila á rafrænu formi til fræðslufulltrúa Norðurþings, jon@nordurthing.is

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsókna og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda ásamt prófskírteinum og leyfisbréfi.

Norðurþing áskilur sér rétt til að hafna öllum umsækjendum.

Gerð er krafa um hreina sakaskrá og heimild til að afla upplýsinga þar að lútandi.

Nánari upplýsingar veitir fræðslufulltrúi Norðurþings í síma 464-6123 eða með því að svara fyrirspurnum sem sendar eru á netfangið jon@nordurthing.is

Norðurþing er öflugt sveitarfélag sem einkennist af fjölbreyttu mannlífi
og miklum sköpunarkrafti manns og náttúru.