Tvö tjaldsvæði verða í boði um Mærudaga
20.07.2026
Tilkynningar
Tvö tjaldsvæði verða í boði um Mærudagana
Tjaldsvæðið við íþróttavöllinn
- Hefðbundna tjaldsvæðið við íþróttavöllinn verður opið yfir Mærudagshelgina og hentar jafnt tjöldum, fellihýsum, hjólhýsum og húsbílum. Þar er einnig aðstaða til losunar á ferðasalernum.
- 20 ára aldurstakmark er á tjaldsvæðinu við íþróttavöllinn.
Auka tjaldsvæði við Framhaldsskólann á Húsavík
Auka tjaldsvæðið verður opið frá fimmtudeginum 23. júlí kl. 18:00 til sunnudagsins 26. júlí kl. 18:00.
Svæðið er eingöngu fyrir húsbíla, fellihýsi og hjólhýsi og er því ekki ætlað hefðbundnum tjöldum.
Á svæðinu eru:
- 18 rafmagnstenglar
- Þurrsalerni
Athugið:
- Ekkert rennandi vatn á svæðinu.
- Byggingarframkvæmdir eru í gangi á skólalóðinni við hliðina. Gera má ráð fyrir hávaða, sérstaklega á förtudag.
- Þeim sem ætla að tjalda er bent á tjaldsvæðið við íþróttavöllinn.
- Losun fyrir ferðasalerni er á tjaldsvæðinu við íþróttavöllinn.
- Ekki er hægt að bóka í gegnum Parka. Greiða þarf á staðnum með rafrænum greiðslum.
- 25 ára aldurstakmark er á auka tjaldsvæðinu.
Upplýsingar
Allar upplýsingar um bæði tjaldsvæðin veitir rekstraraðili tjaldsvæðanna:
📧 camping.husavik@gmail.com
📞 Vaktsími: 792 0160