Umhverfisátak: Til fyrirtækjaeigenda og lóðarhafa iðnaðar- og athafnalóða
Norðurþing hvetur íbúa, eigendur býla, fyrirtækja og stofnana til að huga að útliti lóða og landareigna og fara í markvissa TILTEKT í sumar. Þetta gildir jafnt um muni á lóðum, á lóðarmörkum og utan lóða. Samhliða eru þeir sem við á hvattir til að sækja um stöðuleyfi fyrir gáma.
- Ef gámar skulu standa innan lóðar lengur en þrjá mánuði skal sækja um stöðuleyfi til sveitarfélagsins.
- Fyrir gáma á skilgreindum geymslusvæðum skal sækja um stöðuleyfi og greiða fyrir árlegt gjald til sveitarfélagsins.
Umsóknir um stöðuleyfi skal senda á nordurthing@nordurthing.is
Ásýnd sveitarfélagsins skiptir okkur öll máli ásamt almennri umgengni í okkar nánasta umhverfi.
Við hvetjum alla til að bera virðingu fyrir eigum og löndum annarra.
Í sumar verður haldið áfram með frekari aðgerðir til að ýta við þeim sem ekki hafa brugðist við. Slíkt ferli getur endað í dagsektum ef lóðarhafi, eigandi muna utan lóða eða gáma sem hafa ekki stöðuleyfi aðhefst ekki.
Einnig má gera ráð fyrir því að búnaður og munir sem eru utan lóða og landareigna verði fjarlægðir á kostnað eiganda.
Hér má sjá gjaldskrá fyrir stöðuleyfi gáma og gjaldskrá þjónustumiðstöðvar