Umhverfisátaks Norðurþings - íbúasamráð um val á vinningshöfum.
07.05.2025
Tilkynningar
Í apríl samþykkti skipulags- og framkvæmdaráð verklagsreglur um umhverfisátak Norðurþings og hleypti því þannig formlega af stokkunum. Jafnframt samþykkti ráðið tímalínu átaksins fyrir næstu mánuði en því lýkur formlega með veitingu viðurkenninga á Mærudögum.
Markmið átaksins er
- Að fegra umhverfi, bæta ásýnd og auka staðarstolt
- Að fyrirtæki bæti umgengni og virði lóðamörk þar sem það á við
- Að koma reglu á notkun gáma og hvetja til umsóknar á stöðuleyfum fyrir lausafjármuni s.s. gáma, báta, bátagrindur o.fl.
Umhverfisverðlaun eru veitt í eftirtöldum flokkum:
- Snyrtilegasta býlið
- Snyrtilegasta lóð fyrirtækis/stofnunar
- Plokkari ársins
- Snyrtilegasta lóðin
Íbúasamráð – val á vinningshöfum og veiting viðurkenninga
- Um miðjan júní er auglýst eftir tillögum frá íbúum um hvaða fyrirtæki/stofnun, einstaklingar, býli og plokkari verðskuldi viðurkenningu. Tillögunum skal fylgja rökstuðningur og myndir. Skila skal tillögum inn í ábendingagátt sveitarfélagsins fyrir 1. júlí ár hvert.
- Skipulags- og framkvæmdaráð vinnur úr innkomnum tillögum og skal eigi síðar en 15. júlí taka ákvörðun um hver af þeim sem tilnefnd eru í hverjum flokki hljóti verðlaun.
- Verðlaunaafhending er hluti af dagskrá Mærudaga og fer fram á stóra sviðinu og á auglýstum tíma á laugardeginum.
Hér má lesa verklagsreglur fyrir umhverfisátak