Fara í efni

Umsjónarmaður félagsstarfs aldraðra - Hreyfing, sköpun, fræðsla og lífsgleði

ATH! Í Skránni þann 4. júní birtist röng auglýsing þar sem auglýst er eftir forstöðumanni en hið rétta er að auglýst er eftir umsjónarmanni.

Félagsþjónusta Norðurþings auglýsir eftir öflugum og skapandi leiðtoga í starf umsjónarmanns félagsstarfs aldraðra. Umsjónarmaður er í samstarfi við Félag eldri borgara á Húsavík og nágrenni sem er með öflugt félagsstarf og mun starfið fara fram í húnsæði félagsins í Hlyn á Húsavík 

Starfið krefst stefnumótunar og frumkvæðis.

Markmið félagsstarfsins er að fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun með Því að bjóða upp á opið félags og tómstundastarf auk fræðslu og hreyfingu. Félagsstarfið er vettvangur samfunda, mannlegra samskipta og skapandi athafna. Leitast er við að virkja fumkvæði og hæfileika hvers og eins. Boðið er upp á mat í hádeginu og kaffi.

Óskað er eftir metnaðarfullum starfsmanni með reynslu, sem vill leggja sitt að mörkum að gera starfið faglegt og gott með gæði og kærleika að leiðarljósi starfið er opið, skemmtilegt og býður upp á að innleiða nýjungar.

 

Helstu verkefni umsjónarmanns

  • Hefur umsjón með starfi félagsstarf og félagsmiðstöð
  • Umsjón með umhverfi og húsnæði
  • Vikulegir samráðsfundir með félagsþjónustu
  • Skipulagning starfsins í samráði við eldri borgara
  • Finna og halda utan um námskeið og fræðslu
  • Samskipti og samstarf
  • Þátttaka í að innleiða nýjungar
  • Umsjón með hádegisverði, þ.e utan um hald skráningar og greiðslur

 

Menntun og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi er æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, virðing og samvinna
  • Reynsla af starfi með öldruðum
  • Frumkvæði og sjálfstæði vinnubrögð
  • Áhugi á frístunda og félagsstarfi
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi frístundar g félagsmiðstöðvar
  • Góð íslensku kunnátta

Starfið er 50% vinna á heilsárs grundvelli og greitt er samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags

Umsóknarfrestur er til 18. júní 2020

Umsóknum skal skilað til Félagsmálastjóra Norðurþings með tölvupósti hrodny@nordurthing.is sem veitir einnig allar nánari upplýsingar. Ferilskrá skal fylgja umsókn.