Umsjónarmaður félagsstarfs aldraðra óskast
Félagsþjónusta Norðurþings auglýsir eftir öflugum og skapandi starfsmanni í félagsstarf aldraðra á Húsavík og nágrenni. Um er að ræða 50% starf til afleysingar fram að sumrinu 2027. Vinnutími er 13:00-16:00 3x í viku og 11:00-16:00 2x í viku. Starfsmaðurinn vinnur í samstarfi við Félag eldri borgara á Húsavík öflugt félagsstarf og mun starfið fara fram í húsnæði félagsins, Hlyn á Húsavík.
Markmið félagsstarfsins er að fyrirbyggja og draga úr félagslegri einangrun með því að bjóða upp á opið félags- og tómstundastarf 60 ára og eldri. Félagsstarfið er vettvangur samfunda, mannlegra samskipta og skapandi athafna. Leitast er við að virkja fumkvæði og hæfileika hvers og eins.
Óskað er eftir metnaðarfullum starfsmanni með reynslu, sem vill leggja sitt að mörkum að gera starfið faglegt og gott með gæði og kærleika að leiðarljósi, starfið er opið, skemmtilegt og býður upp á að innleiða nýjungar.
Helstu verkefni umsjónarmanns
- Félagsstarf og dagleg starfsemi í félagsstarfinu
- Vikulegir samráðsfundir með félagsþjónustu
- Skipulagning starfsins í samráði við eldri borgara
- Finna og halda utan um námskeið
- Samskipti og samstarf
- Umsjón með hádegisverði, t.d halda utan um skráningar, pantanir og frágangur
Menntun og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur
- Hæfni í mannlegum samskiptum, virðing og samvinna
- Áhugi á að vinna með fólki
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Áhugi á frístunda og félagsstarfi
- Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsins.
- Kunnátta í handverki eða föndri er kostur
- Góð íslensku kunnátta er skilyrði
Starfshlutfall er 50% og um er að ræða afleysingu fram að sumri 2027 og greitt er samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf um miðjan ágúst 2026
Umsóknarfrestur er til og með 20.júní 2026
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sunna Mjöll Bjarnadóttir sunna@nordurthing.is
Ferilskrá skal fylgja umsókn.
Sótt er um starfið í gegnum 50skills HÉR