Fara í efni

Uppbygging gagnavers til skoðunar á Bakka

Norðurþing hélt vel sóttan kynningarfund á deiliskipulagi iðnaðarsvæðisins á Bakka í gær. Á fundinum var farið yfir tillögu að iðnaðarlóð sem er hugsuð undir gagnaver en fjölmargir aðilar hafa sýnt því áhuga að koma með slík verkefni á Bakka.

Á fundinum var greint frá verkefni sem hefur verið í undirbúningi undanfarin misseri en forsvarsmenn verkefnisins, Akur DC, kynntu verkefnið á fundinum. Verkefnið sem ber nafnið Eyrie DC gerir ráð fyrir að reisa 100 MW gagnaver fyrir einn viðskiptavin. Áætluð fjárfesting er um 120 milljarðar króna og er ráðgert að framkvæmdir hefjist 2027 og rekstur hefjist 2028. Gert er ráð fyrir að verkefnið geti skapað 50-70 störf þegar það er komið í fullan rekstur.

Verkefnið er á vinnslustigi og standa nú yfir viðræður, greiningar og undirbúningsvinna með aðkomu viðeigandi aðila. Á þessu stigi liggja ekki fyrir endanlegar ákvarðanir um framkvæmd, en áhuginn undirstrikar það samkeppnisforskot sem Bakki hefur byggt upp á síðustu árum með aðgengi að endurnýjanlegri orku, öflugum innviðum og vel skipulögðu atvinnusvæði.

Norðurþing hefur markvisst unnið að uppbyggingu Bakka með það að markmiði að skapa fjölbreytt og verðmæt störf, styrkja atvinnulíf svæðisins og auka verðmætasköpun í sveitarfélaginu og á Norðurlandi. Verkefni af þessari stærðargráðu gæti haft jákvæð áhrif á atvinnuuppbyggingu, þjónustu og tekjustofna sveitarfélagsins til framtíðar.

Sveitarfélagið fagnar þeim aukna áhuga sem Bakki nýtur meðal innlendra og erlendra fjárfesta og fyrirtækja. Þegar frekari upplýsingar liggja fyrir um framvindu verkefnisins verður íbúum og öðrum hagaðilum upplýst um næstu skref.

Við höfum átt mjög gott samstarf við Akur undanfarna mánuði. Vinna við lóðarsamning er komin vel á veg og samhliða er unnið að samfélagssamningi milli Akurs og Norðurþings. Markmiðið er að verkefnið verði unnið í góðri sátt við samfélagið og með langtímahagsmuni þess að leiðarljósi.

Við erum nokkuð bjartsýn á að verkefnið geti farið af stað á fyrsta ársfjórðungi næsta árs. Verkefni af þessari stærðargráðu eru þó flókin og fjárfrek en við ætlum og verðum að gera það sem í okkar valdi stendur til að koma verkefninu í mark og höfum unnið hörðum höndum að því undanfarna mánuði.

Verkefnið snýst þó um meira en að reisa gagnaver. Störfin sem geta skapast eru góð og verðmæt störf, mörg hver sérhæfð og vel launuð. Samhliða þurfum við því að halda áfram að styrkja samfélagið, innviðina og þjónustuna hér heima fyrir til að geta laðað hingað til okkar fólk og fjölskyldur,“ segir Bergþór Bjarnason, sveitarstjóri Norðurþings.