Fara í efni

Upplýsingafundur - Hjúkrunarheimilið á Húsavík

Sveitarstjórn Norðurþings boðar til upplýsingafundar fyrir íbúa og áhugasöm um stöðu mála vegna uppbyggingar Hjúkrunarheimilis á Húsavík.

Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 9. nóvember kl. 16:15 í Fundarherbergi í Stjórnsýsluhúsinu á Húsavík, gengið inn að suð-vestan.

Til að átta okkur á fjölda er gott að fá skráningar á fundinn í síma 464-6100 eða með tölvupósti á netfangið nordurthing@nordurthing.is.

Möguleiki verður á að sitja fundinn í fjarfundi á TEAMS, þá þarf að senda inn netfang.

Sveitarstjórn hefur í stefnu sinni að halda íbúafundi um sveitarfélagið með sveitarstjórn og efla samtal kjörinna fulltrúa við íbúa, fyrirtæki og stofnanir.

Áhugasöm um málefni sveitarfélagsins eru hvött til að mæta á fundinn og taka þátt í umræðum.