Fara í efni

Upplýsingar vegna Hjúkrunarheimilis á Húsavík

Í vor var gengið frá öllum samningum á milli sveitarfélaganna og ríkisins vegna nýbyggingar 60 rýma hjúkrunarheimilis á Húsavík.

Í sumar unnu hönnuðir að endanlegum útboðsgögnum og er reiknað með að þeim verði skilað til Ríkiseigna núna í vikunni. Í framhaldinu verður fundur Ríkiseigna með Ríkiskaupum þar sem þeir taka við gögnum verkefnisins til útboðs. Að þeim fundi loknum mun dagsetning útboðs liggja fyrir.