Fara í efni

Uppsetning húseininga við Borgarhólsskóla

Í vikunni hafa verktakar unnið að uppsetningu færanlegra húseininga við Borgarhólsskóla.

Aðstaðan hefur fengið heitið „Skýið“ og mun hýsa hluta af starfsemi Borgarhólsskóla á meðan unnið er að uppbyggingu framtíðarhúsnæðis fyrir Frístund og félagsmiðstöð.

Bæði fjölskylduráð og skipulags- og framkvæmdaráð hafa einróma staðfest niðurstöðu spretthóps um staðsetningu frístundahúsnæðis og félagsmiðstöðvar á Húsavík. Niðurstaða spretthópsins er að leggja til að byggt verði við austurenda Borgarhólsskóla, í átt að Framhaldsskólanum. Afgreiðslur ráðanna munu verða til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn á næsta fundi þann 28. september nk.