Fara í efni

Útboð á framkvæmdum við viðbyggingu Borgarhólsskóla á Húsavík

Norðurþing óskar eftir tilboðum í byggingu viðbyggingar við grunnskólann á Húsavík, Borgarhólsskóla.

Verktími: Reiknað er með að framkvæmdir geti hafist fljótlega eftir undirritun samnings. Verklok eru 1.júní 2026.

Lýsing á verkinu: Verkið felst í aðstöðusköpun, jarðvinnu, uppsteypu húss og gerð þaks, öll tækni- og lagnakerfi hússins s.s. loftæsing, lagnir og raflagnir, fullnaðarfrágangur húss bæði utan húss og innan að hluta. Undanskilið í frágangi innanhúss í þessu útboði eru meðal annars: gólfdúkar með tilheyrandi flotun, innihurðir og fastar innréttingar. Grófjöfnun lóðar er innifalið í þessu verki, en frekari lóðarframkvæmdir eru ekki innifaldar.

Birt flatarmál mannvirkisins er 875,4m2.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá og með mánudeginum 3.mars 2025. Hafa skal samband við hes@efla.is til að nálgast útboðsgögn.

Fyrirspurnir berist til hes@efla.is í síðasta lagi 17.mars 2025. Fyrirspurnum verður svarað í síðasta lagi 19.mars 2025.

Tilboðum skal skila á tölvupósti til hes@efla.is eigi síðar en 25.mars klukkan 10.00. Ekki verður haldinn eiginlegur opnunarfundur.
Tilboð verða opnuð 25.mars klukkan 10.00, niðurstaða opnunar verður send á bjóðendur í tölvupósti og síðan birt á vefsíðu Norðurþings.

Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.