Fara í efni

Útboð á hirðu úrgangs í Norðurþingi og Tjörneshreppi

Kvöðull ehf, óskar fyrir hönd Norðurþings eftir tilboðum í hirðu og meðhöndlun úrgangs samkvæmt skilmálum útboðslýsingar. Um er að ræða útboð sem er skipt í aðskilda þjónustuþætti eins og skilgreindir eru í útboðslýsingu.

Samningstími er áætlaður frá 1. október 2025 til 30. september 2030

Útboðsgögn er hægt að fá afhent frá og með mánudeginum 3. mars með því að hafa samband við kvodull@gmail.com

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Fyrirspurnir berist til kvodull@gmail.com í síðasta lagi 17. mars 2025

Tilboðum skal skila með tölvupósti til kvodull@gmail.com eigi síðar en kl.13:00, fimmtudaginn 3. apríl 2025.

Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

Nánari upplýsingar veitir:
kvodull@gmail.com
Sævar Freyr
(+354) 825 8888