Útboðsverk hjá Vegagerðinni árið 2026
Í framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar í maí kemur fram að fyrirhuguð eru tvö útboðsverk á árinu 2026 sem snerta Norðurþing.
Annað verkið snýst um vegabætur á Norðausturvegi (85) í Þingeyjarsveit, um Skjálfandafljót í Kinn.
Verkið felst í ný- og endurbyggingu Norðausturvegar á um 10 km kafla. Framkvæmdin er í umhverfismati en fyrirhugað er að byggja allt að þrjár nýjar brýr, yfir Rangá og Skjálfandafljót. Fyrirhugað er að bjóða verkið út í lok árs 2026 og eru verklok áætluð 2028.
Hitt verkið er hafnagerð á Húsavík, stálþilsframkvæmd.
Það snýst um 300 metra endurbyggingu og lengingu á Þvergarði og verður verkið boðið út í sumar. Þetta verk kemur í framhaldi af vinnu sem er í gangi í Húsavíkurhöfn við gröft á skurði fyrir væntanlegt stálþil, alls um 183 m ásamt fordýpkun 5 m fyrir framan væntanlegt þil. Verkin eru á hendi hafnasviðs Vegagerðarinnar með kostnaðarþátttöku Hafnasjóðs Norðurþings.