Vel heppnuð vinnustofa um lýðræðisleg réttindi fyrir íbúa af erlendum uppruna
Norðurþing er þátttakandi í verkefninu Mitt atkvæði – Mín rödd sem snýr að því að efla lýðræðislega þátttöku íbúa af erlendum uppruna í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 16. maí nk.
Magnea Marinósdóttir, stjórnmálafræðingur, heldur utan um verkefnið í nánu samstarfi við hvert og eitt þátttökusveitarfélag. Verkefnið fékk styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála og Samband íslenskra sveitarfélaga er bakhjarl.
Laugardaginn 14. mars stóð sveitarfélagið fyrir vinnustofu sem var öllum opin, óháð búsetutíma og ríkisborgararétti, og þátttakendum að kostnaðarlausu.
Magnea sagði vinnustofuna hafa gengið vel enda hafi þátttakendur verið virkir og áhugasamir. Þá hafi heimsókn bæði forseta sveitarstjórnar og sveitarstjóra verið sérstaklega ánægjuleg. Það var samróma mat þátttakenda að vinnustofan hafi verið gagnleg. Ein tók sérstaklega fram að andrúmsloftið hafi verið afslappað og jákvætt; „Mér fannst ég geta talað opinskátt um skoðanir mínar og spurt spurninga. Ég er ánægð að hafa komið í dag. Takk fyrir mig!“
Í framhaldi af vinnustofunni verður haldinn opinn fundur þar sem íbúar af erlendum uppruna fá tækifæri til að kynna sér fyrir hvað framboðin til sveitarstjórnar standa. Nánari upplýsingar verða kynntar síðar.



