Fara í efni

Viðburðastyrkir vegna Hinsegin hátíðar 2026

Hinsegin hátíðin á Norðurlandi eystra verður haldin í annað sinn dagana 18.-21. júní 2026. Verkefnið hlaut að nýju styrk úr uppbyggingasjóði Sóknaráætlunar Norðurlands eystra.

Í ár verður sú nýjung í boði að hægt er að sækja um styrki fyrir viðburðahaldi á hátíðinni í viðburðapott. Búið er að opna fyrir umsóknir og umsóknarfrestur er til og með 13. apríl nk. Sótt er um á rafrænu umsóknarblaði sem finna má HÉR.

Markmið hátíðarinnar er að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. Hátíðin byggir á því góða starfi sem unnið hefur verið í Hrísey en fyrsta Hinsegin hátíðin í Hrísey var haldin árið 2023.

Öll sveitarfélögin á Norðurlandi eystra standa að hátíðinni. Sveitarfélögin vinna saman að undirbúningi hátíðarinnar, sem er hugsuð þannig að viðburðir fari fram á öllu svæðinu.

Þau sem vilja koma hugmyndum á framfæri, geta haft samband við Elísabetu Ögn verkefnastjóra hátíðarinnar í gegnum netfangið hinseginhatid@akureyri.is