Fara í efni

Viljayfirlýsing um þróun sjálfbærrar rafeldsneytisvinnslu á Bakka

Viljayfirlýsing um þróun sjálfbærrar rafeldsneytisvinnslu á Bakka

Norðurþing og E‑Valor ehf. hafa undirritað viljayfirlýsingu í tengslum við að kanna möguleika á uppbyggingu sjálfbærrar rafeldsneytisframleiðslu á iðnaðarsvæðinu á Bakka við Húsavík. Verkefnið, sem fyrirhugað er að þróa í þremur áföngum, miðar að framleiðslu allt að 100.000 tonna af rafeldsneyti á ári og fellur vel að markmiðum Bakka sem græns og sjálfbærs iðnaðarparks.

Viljayfirlýsingin kveður á um samstarf á meðan unnið er að forathugunum, meðal annars vegna orkuöflunar, flutningskerfa, hafnarmála, umhverfismats og annarra lykilþátta sem tengjast framkvæmdinni. Norðurþing mun styðja við verkefnið með því að veita aðgang að upplýsingum og vinna með viðeigandi stofnunum, á meðan E‑Valor framkvæmir ítarlega frumhönnun og þarfagreiningu.

E‑Valor hefur þegar fengið úthlutað lóð á Bakka. Stefnt er að því að lokaniðurstöður samkvæmt viljayfirlýsingunni liggi fyrir í september 2026.