Vonskuveður gekk yfir Norðausturhornið
03.03.2026
Fréttir
Vonskuveður gekk yfir Norðausturhornið í gær og nótt. Talsverður snjór hefur safnast upp í skafla í sveitafélaginu en starfsmenn sveitarfélagsins voru búnir að opna helstu leiðir áður en íbúar fóru til vinnu í morgun.
Unnið verður áfram að snjómokstri í dag og eru íbúar beðnir um að sýna tillitsemi og fjarlægja bíla sem kunna að vera fyrir, til að auðvelda moksturinn.
Förum varlega.