Skráning er nú hafinn í sumarfrístund á Húsavík.
Eins og í fyrra fer öll skráning fram í gegnum sportabler. (sportabler.com/shop/nordurthing)
Athugið að það þurfa allir að skrá sig sem ætla vera með í sumar, þó að barn sé nú þegar með vistun í frístund.
Í sumar mun sumarfrístund hafa heimahöfn í Borgarhólsskóla og munum við nýta okkur húsnæði skólans í daglegu starfi.
Í gær var vígsluhátíð við Heimabakarí þar sem formlega voru teknir í notkun fyrstu ramparnir í verkefninu Römpum upp Húsavík.
Húsavík er fyrsti viðkomustaður verkefnisins norðan heiða og því vígsluathöfnin í dag sú fyrsta í verkefninu á Norðurlandi.
Rafmagnstruflanir verða á Raufarhöfn 10.05.2023 frá kl 10:00 til kl 16:00 truflanir verða vegna breytinga á kerfi Rarik. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Norðurlandi í síma 528 9000 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof
Rafmagnslaust verður í Kelduhverfi austur að Ferjubakka 04.05.2023 frá kl 21:00 til kl 22:00 vegna vinnu í háspennukerfi. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Norðurlandi í síma 528 9000 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof