Fara í efni

Aðalfundur Orkuveitu Húsavíkur ohf.

Aðalfundur Orkuveitu Húsavíkur ohf.  árið 2017, vegna starfsársins  2016, verður haldinn þriðjudaginn 2. maí  2017 kl. 14:00 í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, Ketilsbraut 7-9 á Húsavík.

 

Dagskrá skv. 14. grein samþykkta félagsins:

 

  1. Stjórn félagsins skal skýra hluthöfum frá hag félagsins og rekstri þess á liðnu starfsári.
  2. Efnahagsreikningur og rekstrarreikningur félagsins fyrir liðið starfsár skulu lagðir fram ásamt athugasemdum endurskoðenda félagsins til samþykktar.
  3. Tekin skal ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu.
  4. Kjör stjórnar.
  5. Kjör endurskoðanda.
  6. Ákvörðun skal tekin um greiðslur til stjórnarmanna fyrir störf þeirra á starfsárinu.
  7. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.