Fara í efni

Breyting á A deild Brúar lífeyrissjóðs frá 1. júní 2017

Breytingar á A deild Brúar lífeyrissjóðs frá 1. júní

Breytingar verða á réttindaöflun sjóðfélaga í A deild Brúar lífeyrissjóðs frá og með 1. júní næst komandi.  Breytingarnar hafa mismunandi áhrif á sjóðfélaga og eru þær gerðar vegna breytinga á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Hefur sú lagabreyting áhrif á A deild Brúar lífeyrissjóðs.

Eftirfarandi breytingar verða eftir 1. júní 2017:

  • Réttindaávinnsla      A deildar er breytt úr jafnri réttindaávinnslu yfir í aldurstengda      réttindaávinnslu.
  • Lífeyrisaldur      samræmdur við almennan vinnumarkað og verður 67 ár.
  • A deild      er viðhaldið en þeir sem greiða áfram iðgjald til sjóðsins fara yfir í      aldurstengda réttindaávinnslu en mismunur á réttindum í jafnri og      aldurstengdri ávinnslu er mætt með sérstöku framlagi, lífeyrisauka, sem      launagreiðendur greiða inn til sjóðsins.
  • Auk      framlags í lífeyrisaukasjóð greiða launagreiðendur framlag í jafnvægissjóð      sem er nýttur til að koma áfallinni stöðu A deildar í jafnvægi þann 31.maí      2017
  • Nýir      sjóðfélagar frá 1. júní 2017 fara í aldurstengda réttindaávinnslu.
  • Launagreiðendur      greiða einnig til sjóðsins framlag í varúðarsjóð.
  • Mótframlag launagreiðanda lækkar úr 12% í 11,5% þann      1. júní 2017.
  • Réttindi      þeirra sem byrjaðir eru á lífeyri þann 31. maí 2017 og þeirra sem verða 60      ára á sama tíma verða ekki skert eða aukin þó svo til skerðingar eða      réttindaaukningar komi hjá öðrum sjóðfélögum. Launagreiðendur gera      sérstaklega upp fjárhagsleg áhrif vegna þessara sjóðfélaga við sjóðinn.

Sjá nánar um breytingu á A deild hér.