Fara í efni

Jólatré Húsavíkur 2018

Jólatré Húsavíkur 2018

 

Í dag fimmtudaginn 15. nóvember hefst kosning um jólatré Húsavíkur 2018. Yfir 10 tilnefningar bárust af fallegum trjám. Af þeim hafa 4 tré verið valin og er hægt að kjósa um þá á þessum link: https://www.facebook.com/events/203308517236934/permalink/203312547236531/

Við hvetjum bæjarbúa til þess að haka við það tré sem þeir telja myndi sóma sér best sem jólatré Húsavíkur 2018. Við hvetjum fólk til að gera sér glaðan dag og rölta um bæinn og skoða möguleg jólatré.

Við viljum þó minna á að þrjú þessara trjáa eru í einkagörðum og bera þarf virðingu fyrir eigum og friðhelgi einstaklinga.

Kosningu lýkur fimmtudaginn 22. nóvember.

Ef einhverjar spurningar eru vegna þessa vinsamlega hafið samband við umhverfisstjóra Norðurþings í síma 464-6100 eða á netfangið smari@nordurthing.is