Fara í efni

Kynning skipulagslýsingar vegna breytingar á aðal- og deiliskipulagi á Húsavíkurhöfða á Húsavík, Norðurþingi.

Sveitarstjórn Norðurþings, að tillögu skipulags- og umhverfisnefndar, samþykkti á fundi sínum þann 15. maí 2018 að kynna skipulagslýsingu skv. 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytingar á aðal- og deiliskipulagi á Húsavíkurhöfða. Núverandi skipulag gerir ráð fyrir hóteli austan við sjóböð en með breyttu skipulagi færi hótelið á lóð norður fyrir sjóböð. Einnig er fyrirhugað að breyta þéttbýlisuppdrætti aðalskipulags Norðurþings og stækka verslunar- og þjónustusvæði á Húsavíkurhöfða, þannig að áformuð lóð fyrir hótel verði innan þess.

Skipulagslýsing þessi er nú til kynningar á heimasíðu Norðurþings (www.nordurthing.is) auk þess sem hún hangir uppi á skrifstofu Norðurþings á Húsavík. Þeim sem kynnu að hafa ábendingar eða athugasemdir við lýsinguna er bent á að koma þeim á framfæri við Norðurþing fyrir 18. júní 2018.  Tekið verður á móti skriflegum ábendingum á skrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9, Húsavík eða í tölvupósti (gaukur@nordurthing.is og sigurdis@nordurthing.is)

Hér  má nálgast skipulagslýsinguna 

Gaukur Hjartarson

Skipulags- og byggingarfulltrúi