Fara í efni

Lýðheilsugöngur á Kópaskeri og Raufarhöfn

Ferðafélagið Norðurslóð tekur þátt í lýðheilsugöngum FÍ í september. 
Á morgun, miðvikudaginn 4. september verður farið frá skólahúsinu á Kópaskeri kl. 18:00, gengið út að Kópaskersvita og áfram að fjárborginni við enda flugvallar og skrifað þar í gestabók.

Einnig verður farið frá ráðhúsinu / pósthúsinu / bankanum á Raufarhöfn kl. 18:00 miðvikudaginn 4. september og gengið um Höfðann. Litið eftir fílsfótum, hellum og klettum.

Næstu miðvikudaga verður svo gengið sem hér segir:
Frá Kópaskeri:
11. sept. Kollufjall
18. sept. Farið í fjöru. Háfjara kl. 19:37
25. sept. Kópaskersmisgengið

Frá Raufarhöfn:
11. sept. Gengið upp í Heimskautsgerði og niður á Klifin.
18. sept. Gengið um Ásinn og meðfram sjónum heim.