Fara í efni

Míla leggur ljósleiðara til heimila á Húsavík

Nú er Míla að hefjast handa við lagningu ljósleiðara Mílu til heimila á Húsavík. Í þessum fyrsta hluta verkefnisins er áætlað að tengja ljósleiðara til 325 heimila. Fyrstu heimilin verða tengd strax í júlí en önnur heimili verða tengd á fjórða ársfjórðungi þessa árs.

Þær götur sem áætlað er að tengja á þessu ári eru Álfhóll, Árgata, Ásgarðsvegur, Brávellir, Fossvellir, Garðarsbraut 21-83, Grundargarður, Hjarðarhóll, Mararbraut, Skólagarður og Túngata.  Áform Mílu á Húsavík eru svo að halda ljósleiðaravæðingu áfram á næstu árum og tengja öll heimili í þéttbýli Húsavíkur. 

Hvað varðar þjónustu um ljósleiðara Mílu þá sjá fjarskiptafyrirtækin um að veita þjónustuna og hafa öll fjarskiptafyrirtæki á markaði möguleika á að bjóða þjónustu sína um ljósleiðara Mílu. Til að panta þjónustu um ljósleiðarann þarf því aðeins að hafa samband við sitt fjarskiptafyrirtæki og kanna hvaða möguleikar eru í boði.  

Meðal helstu fjarskiptafyrirtækja eru Síminn, Vodafone, Nova, Hringdu, Hringiðan, Snerpa, Fjölnet og Telnet. 

Míla á mikið af innviðum í formi röra og strengja víða um land og þar á meðal á Húsavík. Með því að nota innviði sem eru þegar til staðar er jarðvinnuraski haldið í lágmarki og hægt að tengja fleiri heimili á styttri tíma. Í sumum tilvikum getur þó verið nauðsynlegt að grafa niður á rör innan lóða til að tryggja að hægt sé að draga ljósleiðarann í fyrirliggjandi rör. Míla leggur sig fram við að halda raski sem minnstu og vanda frágang og lágmarka óþægindi fyrir íbúa eins og kostur er.  

Lagning ljósleiðarans er íbúum að kostnaðarlausu á meðan framkvæmdir standa yfir og engin stofnkostnaður fylgir því að fá ljósleiðara Mílu, né skuldbinding um kaup á þjónustu yfir hann.  

Mögulegt er að fá internetþjónustu, sjónvarpsþjónustu og heimasíma yfir ljósleiðara Mílu og verður allt að 1 Gb/s internet hraði í boði fyrir íbúa Húsavíkur. Viðskiptavinum á ljósleiðara Mílu býðst sjónvarpsþjónusta bæði á sjónvarpi Símans og Vodafone. 

Á heimasíðu Mílu www.mila.is er öflug leitarvél þar sem slegið er inn heimilisfangi til að fá upplýsingar um tengimöguleika og mögulegan hámarkshraða. Öll heimili hafa þegar aðgang að þjónustu Mílu um Ljósnetið og hafa þar með möguleika á að lágmarki 50 Mb/s internethraða. Ef ljósleiðari Mílu kemur ekki upp þá er gefið upp hvort heimilið sé komið á framkvæmdaráætlun ljósleiðara eða ekki. 

Frekari upplýsingar um Ljósleiðara Mílu er að finna á www.mila.is