Fara í efni

Grunnskóli Raufarhafnar – Laust starf til umsóknar

Grunnskóli Raufarhafnar er samrekinn leik-og grunnskóli. Skólinn er í samstarfi við Rif rannsóknarstöð sem hefur aðsetur innan skólans. Einnig er samstarf við Öxarfjarðarskóla sem er í 62 km fjarlægð frá Raufarhöfn. Nemendum grunnskólans er ekið einu sinni í viku í Öxarfjarðarskóla þar sem þeir fá kennslu í list- og verkgreinum, íþróttum auk tónlistarkennslu á vegum Tónlistarskóla Húsavíkur. Skólinn hefur verið í samstarfi við félag eldri borgara á Raufarhöfn.
Frá og með 1. janúar 2023 verða í Grunnskóla Raufarhafnar 5 nemendur í 5. – 9.bekk í einum námshópi og 2 börn á leikskólaaldri og ber umsjónarkennari ábyrgð á faglegu starfi meðal nemenda á leik-og grunnskólastigi. Kennari þarf að geta hafið störf strax í byrjun janúar 2023.
Sami skólastjóri stýrir Grunnskóla Raufarhafnar og Öxarfjarðarskóla og hefur fasta viðveru í Öxarfjarðarskóla en kemur einu sinni í viku til Raufarhafnar.

        Staða umsjónarkennara er laus til umsóknar í afleysingar fram til vors 2023 í 100% starf.

Starfslýsing

Leitað er að fjölhæfum kennara sem hefur metnað og býr yfir hæfni til að skipuleggja krefjandi og framsækið skólastarf í samvinnu við skólastjóra, foreldra og nemendur. Jafnframt að styrkja stöðu skólans í nærumhverfinu með samstarfi við Öxarfjarðarskóla og aðrar stofnanir.

Óskað er sérstaklega eftir kennara sem er áreiðanlegur, hefur leiðtogahæfni, sýnir frumkvæði, er ábyrgur, skapandi, sveigjanlegur og lausnamiðaður. Viðkomandi þarf einnig að sinna staðgengilsstöðu skólastjóra og sinna daglegri stjórnun innan skólans.

 

Leiguhúsnæði er í boði á staðnum

 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Kennsluréttindi - leyfisbréf
  • Kennslureynsla af samkennslu árganga er nauðsynleg.
  • Mikil samskiptahæfni og góðir skipulagshæfileikar
  • Sjálfstæði, sveigjanleiki og aðlögunarhæfni
  • Góð tölvukunnátta er nauðsynleg

Umsóknarfrestur er til og með 13.desember 2022.

Umsóknum skal skila með tölvupósti til skólastjóra Grunnskóla Raufarhafnar og Öxarfjarðarskóla á netfangið hrund@nordurthing.is

Nánari upplýsingar eru veittar hjá skólastjóra, Hrund Ásgeirsdóttur í síma 465-2246 eða með fyrirspurnum á netfangið hrund@nordurthing.is