Fara í efni

Listamaður Norðurþings 2020

Fjölskylduráð Norðurþings auglýsir eftir umsóknum frá listamönnum búsettum í Norðurþingi eða rökstuddum ábendingum um hver hljóta skuli nafnbótina Listamaður Norðurþings 2020.

Nafnbótinni fylgir starfsstyrkur að upphæð 500.000 kr. Listamaður Norðurþings skal vera reiðubúinn að vinna með menningarfulltrúa sveitarfélagsins að því að efla áhuga á list og listsköpun í sveitarfélaginu og taka þátt í viðburðum samfélagsins með það að leiðarljósi.

Umsóknir og tilnefningar þurfa að vera rökstuddar. Listamenn láti ítarlegar upplýsingar um náms- og starfsferil sinn fylgja, sem og hugmyndir um á hvaða hátt eigi að nýta styrkinn til listsköpunar.

Reglur um Listamann Norðurþings má finna á vef Norðurþings - Reglur um starfsstyrk listamanns Norðurþings

Umsóknum og/eða ábendingum skal skilað fyrir 1. maí n.k á rafrænu eyðublaði á vef Norðurþings - rafrænt umsóknarblað

Helstu upplýsingar veitir Sigrún Björg Aðalgeirsdóttir, fjölmenningarfulltrúi og hægt er að hafa samband með tölvupósti á netfangið: sigrunbjorg@nordurthing.is eða í síma 464 6100.