Fara í efni

Listamaður Norðurþings 2023

Fjölskylduráð Norðurþings auglýsir eftir umsóknum frá listamönnum búsettum í Norðurþingi og vilja hljóta nafnbótina
Listamaður Norðurþings 2023.

Nafnbótinni Listamaður Norðurþings fylgir starfsstyrkur að upphæð 500.000 kr.

Reglur um Listamann Norðurþings má finna á vef Norðurþings - www.nordurthing.is
Umsóknum og/eða ábendingum skal skilað 21. maí n.k. á rafrænu eyðublaði á vef Norðurþings
Helstu upplýsingar veitir Nele Marie Beitelstein fjölmenningarfulltrúi og hægt er að hafa
samband með tölvupósti á netfangið nele@nordurthing.is eða í síma 464-6100
Ketilsbraut 7-9 / 640 Húsavík / 464 6100 / www.nordurthing.is / nordurthing@nordurthing.is

Listamaður Norðurþings skal vera reiðubúinn að vinna með menningarfulltrúa sveitarfélagsins að
því að efla áhuga á list og listsköpun í sveitarfélaginu og taka þátt í viðburðum samfélagsins með það að leiðarljósi.