Fara í efni

Mærudagar 2020 - Slegnir af

Norðurþing vill vekja athygli að vegna þróunar mála er snúa að heimsfaraldri kórónuveirunnar mun Norðurþing ekki standa fyrir formlegum hátíðarhöldum vegna Mærudaga sumarið 2020.

Ekki verður boðið upp á formlega dagskrá í nafni hátíðarinnar, en íbúar allir engu að síður hvattir til að skreyta bæinn og gera sér glaðan dag með fjölskyldu og vinum hér á svæðinu helgina 25.-26. júlí.