Fara í efni

Tillaga að breytingu deiliskipulags Norðurhafnar á Húsavík, Norðurþingi

Sveitarstjórn Norðurþings samþykkti á fundi sínum 1. desember 2022 að kynna tillögu að breytingu deiliskipulags Norðurhafnar á Húsavík skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingartillagan felur í sér sameiningu tveggja lóða að Norðurgarði 7 og 9 í eina og sú lóð er stækkuð inn á athafnasvæði hafnarstarfsemi samkvæmt núgildandi deiliskipulagi. Lóðin Norðurgarður 7 verður þá 12.100 m² og þar heimilt að reisa hús fyrir flutningastarfsemi eða úrvinnslu sjávarfangs. Hámarks nýtingarhlutfall verður 0,5 og mesta þakhæð 11 m. Breytingartillagan er sett fram sem uppdráttur með greinargerð á einu blaði í blaðstærð A2.

Breytingartillaga þessi er nú til kynningar á heimasíðu Norðurþings (www.nordurthing.is) auk þess sem hún hangir uppi á skrifstofu Norðurþings á Húsavík. Kynningartími skipulagstillögunnar er frá 8. desember 2022 til og með 19. janúar 2023. Þeim sem kynnu að hafa ábendingar eða athugasemdir við breytingartillöguna er bent á að koma þeim á framfæri við Norðurþing fyrir lok fimmtudags 19. janúar 2023. Tekið verður á móti skriflegum athugasemdum og ábendingum á skrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9, Húsavík eða í tölvupósti á nordurthing@nordurthing.is

Norðurhöfn - tillaga að breytingu á deiliskipulagi

 

Húsavík, 2. desember 2022

Gaukur Hjartarson

Skipulags- og byggingarfulltrúi Norðurþings