Fara í efni

Frístund á Húsavík auglýsir eftir starfsmanni

Frístund á Húsavík auglýsir frístundaleiðbeinanda í 50% starfshlutfall

Vinnutími er milli 12 og 16 virka daga.

Umsækjendur þurfa að:

  • hafa náð 18 ára aldri
  • hafa áhuga á að vinna með börnum
  • vera samstarfsfúsir, sveigjanlegir og sýna frumkvæði
  • vera jákvæðir og sýna færni í mannlegum samskiptum
  • hafa hreint sakavottorð

Umsóknarfrestur er til 5. september 2021. 
Umsóknum skal skilað í tölvupósti á netfangið kristinn@nordurthing.is