Fara í efni

Bæjarráð Norðurþings

69. fundur 14. mars 2013 kl. 16:00 - 18:00 í stjórnsýsluhúsi Norðurþings
Nefndarmenn
  • Gunnlaugur Stefánsson aðalmaður
  • Þráinn Guðni Gunnarsson aðalmaður
  • Trausti Aðalsteinsson áheyrnarfulltrúi
  • Friðrik Sigurðsson áheyrnarfulltrúi
  • Olga Gísladóttir 1. varamaður
  • Guðbjartur Ellert Jónsson fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Guðbjartur Ellert Jónsson Fjármálastjóri - staðgengill bæjarstjóra
Dagskrá

1.XXVII. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga

Málsnúmer 201302053Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggur að gera breytingu á kjörnum fulltrúa Norðurþings á XXVII landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga sem fram fer 15. mars n.k., en vegna sérstakra aðstæðna, á aðalmaður og varamenn ekki kost á að mæta. Bæjarráð felur Soffíu Helgadóttir að fara með umboð sveitarfélagsins á XXVII. landsþingi Samband íslenskra sveitarfélaga.

2.Garðarshólmur 2013

Málsnúmer 201301062Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggur beiðni sem borist hefur frá stjórn Garðarshólma SES og felur í sér að sveitarfélagið skipi einn fulltrúa til að sitja í starfshóp um verkefni félagsins. Bæjarráð felur Hjálmari Boga Hafliðasyni að sitja í starfshópnum.

3.Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, 541. mál til umsagnar

Málsnúmer 201302089Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggur til umsagnar frumvarp til laga um útlendinga ( heildarlög, EES reglur ), frá Allherjar- og menntamálanefnd Alþingis, mál nr. 541. Erindið lagt fram til kynningar.

4.Saman hópurinn-umsókn um styrk

Málsnúmer 201101061Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggur styrkbeiðni frá Saman hópnum. Saman hópurinn er samstarfsvettvangur frjálsra félagasamtaka, stofnana og sveitarfélaga sem láta sig varða forvarnir og velferð barna. Leiðarljós í starfi hópsins eru niðurstöður rannsókna sem sýna mikilvægi og áhrifamátt foreldra í forvörnum. Bæjarráð þakkar forsvarsmönnum Saman hópsins fyrir erindið og þann einhug og óeigingjarnt starf sem það sinnir en getur því miður ekki orðið við erindinu að þessu sinni.

5.Thorsil ehf., ívilnanir til handa fyrirtækinu vegna nýfjárfestinga á Íslandi

Málsnúmer 201303016Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggur erindi frá Hákoni Björnssyni, f.h. Thorsil ehf., sem felur í sér beiðni um ívilnanir til handa félaginu vegna nýfjárfestinga á Íslandi. Félagið sendir erindið bæði á atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og sveitarfélagið Norðurþing. Þess er einnig góðfúslega óskað að erindið verði meðhöndlað og afgreitt í eins mikilli samvinnu við bréfritara og kostur er. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara um beiðni félagsins.

6.804. fundur stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

Málsnúmer 201303010Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggur til kynningar fundargerð 804. fundar stjórnar Sambands íslenskara sveitarfélaga. Fundargerðin lögð fram til kynningar.

7.Skipun starfshóps um frágang lóðar Síldarvinnslu ríkisins á Raufarhöfn.

Málsnúmer 201201062Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggur skipunarbréf starfshóps um frágang lóðar SR á Raufarhöfn. Á síðasta bæjarráðfundi var bæjarstjóra falið gera slíkt bréf og leggja fyrir bæjarráð. Innihald og erindi bréfsins felur m.a. eftirfarandi: ;<SPAN style="LINE-HEIGHT: 115%; FONT-FAMILY: " Roman?? New ?Times mso-bidi-font-family: 10pt; FONT-SIZE: Verdana?,?sans-serif?;>”Bæjarráð Norðurþings skipar eftirfarandi aðila í starfshóp til að fjalla um og veita ráðgefandi umsögn um nýtingu húseigna SR á Raufarhöfn. Starfshópurinn er skipaður í samræmi við samkomulag sem gert var á milli sveitarfélagsins Norðurþing, Ríkissjóðs Íslands og Síldarvinnslunnar hf. (SVN) og var undirritað 20. desember 2011. Samkvæmt samkomulaginu felur verkefnið í sér niðurrif tiltekinni eigna, nauðsynlegs frágangs, hreinsun lóðar og förgun úrgangs. Starfshópnum er ætlað að kanna nýtingu og hlutverk eignana til framtíðar og leggja fram tillögu um nauðsynlega hreinsun í umhverfi eignana. Megin markmið sveitarfélagsins Norðurþings er að koma nýtanlegum eignum í sölu og þá um leið undir starfsemi sem nýst geti til atvinnuuppbyggingar á Raufarhöfn, en mun ekki ætla sér að vera eignaraðili eða rekstraraðili húseignanna til lengri tíma. ;<SPAN style="LINE-HEIGHT: 115%; FONT-FAMILY: " Roman?? New ?Times mso-bidi-font-family: 10pt; FONT-SIZE: Verdana?,?sans-serif?;>Samkvæmt skipunarbréfi þessu er starfshópnum ætlað að meta, greina og leggja fram tillögu til bæjarráðs vegna nýtingu, sölu og niðurrifa eigna SR á Raufarhöfn. Starfshópurinn þarf að taka tillit til rekstrar- og kostnaðarþátta sveitarfélagsins við nýtingu eignana m.a. kostnað vegna eigahalds, reksturs og viðhaldskostnaðar, kostnaðar vegna lóðaskiptinga og förgunar vegna niðurrifs. Mikilvægt er að starfshópurinn meti nýtingu lóða og umhverfi við húseignirnar og hvaða kostnaður fylgir þeirri umsýslu. Starfshópnum er ætlað að flokka eignirnar eftir mikilvægi nýtingar og gera þá jafnframt grein fyrir væntum kostnaði sem til fellur fyrir hverja einstaka eign. Starfshópurinn leggi ráðgefandi mat á hvaða eignir skynsamleg sé að selja og hvað eignir er skynsamlegt að rífa. ;<SPAN style="LINE-HEIGHT: 115%; FONT-FAMILY: " Roman?? New ?Times mso-bidi-font-family: 10pt; FONT-SIZE: Verdana?,?sans-serif?;>Eftirfarand hlutverk starfshópsins felst í að: <P style="TEXT-INDENT: -18pt; MARGIN: 0cm 0cm 0pt 36pt; mso-list: l0 level1 lfo1" class=MsoListParagraphCxSpFirst><SPAN style="LINE-HEIGHT: 115%; FONT-FAMILY: " mso-bidi-font-family: 10pt; FONT-SIZE: Verdana?,?sans-serif?; Verdana? mso-fareast-font-family: Verdana;>1.<SPAN style="LINE-HEIGHT: normal; FONT-VARIANT: normal; FONT-STYLE: normal; FONT-SIZE: 7pt; FONT-WEIGHT: normal" Roman?? New Times> <SPAN style="LINE-HEIGHT: 115%; FONT-FAMILY: " Roman?? New ?Times mso-bidi-font-family: 10pt; FONT-SIZE: Verdana?,?sans-serif?;>Gera yfirlit yfir eignirnar og meta ástand þeirra. <P style="TEXT-INDENT: -18pt; MARGIN: 0cm 0cm 0pt 36pt; mso-list: l0 level1 lfo1" class=MsoListParagraphCxSpMiddle><SPAN style="LINE-HEIGHT: 115%; FONT-FAMILY: " mso-bidi-font-family: 10pt; FONT-SIZE: Verdana?,?sans-serif?; Verdana? mso-fareast-font-family: Verdana;>2.<SPAN style="LINE-HEIGHT: normal; FONT-VARIANT: normal; FONT-STYLE: normal; FONT-SIZE: 7pt; FONT-WEIGHT: normal" Roman?? New Times> <SPAN style="LINE-HEIGHT: 115%; FONT-FAMILY: " Roman?? New ?Times mso-bidi-font-family: 10pt; FONT-SIZE: Verdana?,?sans-serif?;>Gera kostnaðarmat á rekstsrarkostnaði húseigna, lóða og umhverfi á ársgrundvelli. <P style="TEXT-INDENT: -18pt; MARGIN: 0cm 0cm 0pt 36pt; mso-list: l0 level1 lfo1" class=MsoListParagraphCxSpMiddle><SPAN style="LINE-HEIGHT: 115%; FONT-FAMILY: " mso-bidi-font-family: 10pt; FONT-SIZE: Verdana?,?sans-serif?; Verdana? mso-fareast-font-family: Verdana;>3.<SPAN style="LINE-HEIGHT: normal; FONT-VARIANT: normal; FONT-STYLE: normal; FONT-SIZE: 7pt; FONT-WEIGHT: normal" Roman?? New Times> <SPAN style="LINE-HEIGHT: 115%; FONT-FAMILY: " Roman?? New ?Times mso-bidi-font-family: 10pt; FONT-SIZE: Verdana?,?sans-serif?;>Starfshópnum er falið að fara yfir kosti og galla þess að selja eða rífa eignir. <P style="TEXT-INDENT: -18pt; MARGIN: 0cm 0cm 10pt 36pt; mso-list: l0 level1 lfo1" class=MsoListParagraphCxSpLast><SPAN style="LINE-HEIGHT: 115%; FONT-FAMILY: " mso-bidi-font-family: 10pt; FONT-SIZE: Verdana?,?sans-serif?; Verdana? mso-fareast-font-family: Verdana;>4.<SPAN style="LINE-HEIGHT: normal; FONT-VARIANT: normal; FONT-STYLE: normal; FONT-SIZE: 7pt; FONT-WEIGHT: normal" Roman?? New Times> <SPAN style="LINE-HEIGHT: 115%; FONT-FAMILY: " Roman?? New ?Times mso-bidi-font-family: 10pt; FONT-SIZE: Verdana?,?sans-serif?;>Starfshópnum er falið að leggja fram kostnaðartölur með tillögum sínum sem skiptast niður á skilgreinda verkþætti. ;<SPAN style="LINE-HEIGHT: 115%; FONT-FAMILY: " Roman?? New ?Times mso-bidi-font-family: 10pt; FONT-SIZE: Verdana?,?sans-serif?;>Starfshópnum er ætlað að skila inn skýrslu til bæjarráðs Norðurþings, þar sem tillögur starfshópsins koma fram. Starfshópnum er ætlað að skila af sér eigi síðar en 15. apríl 2013.“ ;<SPAN style="LINE-HEIGHT: 115%; FONT-FAMILY: " Roman?? New ?Times mso-bidi-font-family: 10pt; FONT-SIZE: Verdana?,?sans-serif?;> ;<SPAN style="LINE-HEIGHT: 115%; FONT-FAMILY: " Roman?? New ?Times mso-bidi-font-family: 10pt; FONT-SIZE: Verdana?,?sans-serif?;>Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi skipunarbréf og felur bæjarstjóra að koma bréfinu til skipaðra fulltrúa starfshópsins.

8.Enor ehf. ósk um að kynna fyrirtækið fyrir bæjarráði

Málsnúmer 201212094Vakta málsnúmer

Á fund bæjarráðs mættu Niels Guðmundsson og Davíð Búi Halldórsson sem fulltrúar Enors ehf., en fyrirtækið veitir m.a. endurskoðunarþjónustu. Fóru þeir yfir og kynntu starfsemi félagsins en þegar hefur verið opnuð þjónustuskrifstofa á Húsavík. Bæjarráð þakkar þeim Níels og Davíð Búa fyrir góða kynningu.

Fundi slitið - kl. 18:00.