Fara í efni

Bæjarráð Norðurþings

58. fundur 11. október 2012 kl. 16:00 - 18:00 í stjórnsýsluhúsi Norðurþings
Nefndarmenn
  • Jón Helgi Björnsson formaður
  • Gunnlaugur Stefánsson aðalmaður
  • Þráinn Guðni Gunnarsson aðalmaður
  • Trausti Aðalsteinsson áheyrnarfulltrúi
  • Friðrik Sigurðsson áheyrnarfulltrúi
  • Bergur Elías Ágústsson bæjarstjóri
  • Guðbjartur Ellert Jónsson fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Guðbjartur Ellert Jónsson Fjármálastjóri
Dagskrá

1.Eyþing fundargerðir 2012

Málsnúmer 201201020Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráð liggur til kynningar fundargerð 232 fundar Eyþings sem fram fór 11. september s.l. Fundargerðin lögð fram til kynningar.

2.Grímsstaðir á Fjöllum - uppbygging ferðaþjónustu

Málsnúmer 201210041Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggja málefni GáF ehf. vegna uppbyggingar ferðaþjónustu á Grímsstöðum á Fjöllum. Bæjarstjóri fór yfir og kynnti samningsdrög við fjárfesti um uppbyggingu verkefnisins á Grímsstöðum.

3.Landssamband hestamannafélaga óskar eftir styrk vegna skráningar reiðleiða - kortasjá

Málsnúmer 201210032Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggur erindi frá Landssambandi hestamannafélaga þar sem fram kemur beiðni um styrk vegna verkefnis sem félagið hefur unnið að í samvinnu við Vegagerðina og felst í skráningu reiðleiða á öllu landinu frá árinu 2007. Reiðleiðirnar eru unnar ofan á loftmyndagrunn frá Loftmyndum ehf. og eru settar inn í kortasjá sem er öllum opin og aðgengileg á netinu. Í kortasjá er hægt að sjá upplýsingar um reiðleiðirnar og hægt að hlaða niður ferlum í GPS tæki fyrir hverja einstaka reiðleið. Reiðleiðirnar eru flokkaðar í þéttbýlis-, stofn- og héraðsleiðir og þær númeraðar.Reksturinn á kortasjánni og vinna við skráningu reiðleiða hefur verið fjármagnaður af reiðvegafé sem LH fær árlega frá Vegagerðinni af samgönguáætlun. LH úthlutar síðan til allra hestamannafélaga á landinu, sem eru 48 alls, í samræmi við umsóknir þeirra um framkvæmdir við reiðvegi. Á þessu ári voru umsóknir hestamannafélaganna samtals að upphæð 186 milljónir en til úthlutunar voru 50 milljónir til reiðvegagerðar og reksturs og vinnu við kortasjá. Gert er ráð fyrir að hægt verði á næstu fjórum árum að ljúka við skráningu allra reiðleiða á landinu fáist fjármagn í verkefnið. LH óskar eftir fjárstuðningi sveitarfélagsins til þessa verkefnis og er farið fram á kr. 100.000.- á ári á næstu fjórum árum. Ávinningur sveitarfélagsins er fullkomin skráning og aðgengilegt form á öllum reiðleiðum viðkomandi sveitarfélags. Sveitarfélagið getur fengið reiðleiðirnar á starfrænu formi og landfræðilega rétt staðsettar til þess að nota í sína gagnagrunna og til þess að nota við skipulagsvinnu á vegum sveitarfélagsins. Bæjarráð þakkar bréfritara fyrir erindið en getur ekki orðið við erindinu að svo stöddu.

4.Umhverfis og auðlindaráðuneytið-Drög að heildstæðu frumvarpi til náttúruverndarlaga

Málsnúmer 201209014Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggja drög að frumvarpi til náttúruverndarlaga frá Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Bæjarráð telur að frumvarpið þarfnist frekari skoðunar áður en hægt er að taka afstöðu til þess. Bæjarráð leggur til að afgreiðslu frumvarpsins verði frestað þar til víðtækt samráð hefur átt sér stað og í sátt við sveitarfélög landsins.

5.Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Birni V. Björnssyni f.h. Fjallalambs ehf.

Málsnúmer 201210043Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggur til afgreiðslu ósk Sýslumannsins á Húsavík um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Birni V. Björnssyni f.h. Fjallalambs ehf. Bæjarráð veitir jákvæða umsögn að því tilskyldu að aðrir sem um slík leyfi fjalla geri slíkt hið sama.

6.Aðild að Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga

Málsnúmer 201210044Vakta málsnúmer

Fyrir bæjarráði liggur boð um aðild Norðurþings að Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga. Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu í bæjarstjórn. Friðrik óskar bókað:Báknið burt. Friðrik Sigurðsson - sign.

Fundi slitið - kl. 18:00.