Fara í efni

Byggðarráð Norðurþings

518. fundur 23. mars 2026 kl. 08:00 - 09:30 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Helena Eydís Ingólfsdóttir formaður
  • Hjálmar Bogi Hafliðason varaformaður
  • Ingibjörg Benediktsdóttir varamaður
    Aðalmaður: Aldey Unnar Traustadóttir
  • Benóný Valur Jakobsson áheyrnarfulltrúi
  • Áki Hauksson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bergþór Bjarnason fjármálastjóri
  • Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Bergþór Bjarnason fjármálastjóri
Dagskrá
Áki Hauksson vék af fundi kl 08:55.

1.Ársreikningur Norðurþings 2025

Málsnúmer 202603073Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja drög að ársreikningum sjóða og B-hluta félaga sveitarfélagsins.

Hólmgrímur Bjarnason endurskoðandi frá Deloitte sat undir þessum lið.
Byggðarráð þakkar Hólmgrími frá Deloitte fyrir ítarlega og góða yfirferð á ársreikningi 2025.

Byggðarráð vísar ársreikningnum til fyrri umræðu í sveitarstjórn.

2.Tillaga um að endurskoða fjárfestinga og framkvæmdaáætlun 2026- 2029

Málsnúmer 202603044Vakta málsnúmer

Á 517. fundi byggðarráðs þann 12. mars sl. var afgreiðslu málsins frestað að tillögu fjármálastjóra.

Undirritaður leggur til að framkvæmdum sem áætlað var að framkvæma á árinu 2026 að upphæð 190 m.kr verði færðar til ársins 2027. Þeim framkvæmdum sem verður seinkað eru gólf og stúka íþróttahöll, endurnýjun götu/Ketilsbraut og framkvæmdum við stjórnsýsluhús Ketilsbraut 7-9 á Húsavík og ný sundlaug í Lundi. Framkvæmdum verði framhaldið við félagsmiðstöð og frístund og Suðurgarð.

Kröfur á sveitarfélagið vegna endurgreiðslu farþegagjalda hvalaskoðunarfyrirtækja á Húsavík nema í heild rúmlega 190 m.kr. Staða sveitarsjóðs er þung vegna stöðvunar verksmiðju PCC á Bakka.

Tillagan felur í sér að framkvæmt verður fyrir 410 m.kr í A-hluta á árinu 2026 í stað 595 m.kr sem samþykkt var í fjárhagsáætlun 2026-2029.

Hjálmar Bogi Hafliðason
Tillagan er samþykkt með atkvæðum Helenu og Hjálmars, Ingibjörg greiðir atkvæði gegn tillögunni.

Hjálmar og Helena óska bókað:
Sveitarstjórnum ber að tryggja að fjármál sveitarfélaga standist fjárhagsleg viðmið um rekstur sveitarfélaga skv. sveitarstjórnarlögum og reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.
Norðurþing stendur frammi fyrir kröfum vegna farþegagjalda að upphæð 130 m.kr. Að auki hafa verið greiddar 64 m.kr. vegna dómsmáls í farþegagjaldamálinu. Vegna rekstrarstöðvunar PCC og mikils tekjusamdráttar samhliða henni hefur verið gripið til hagræðingaraðgerða að upphæð 120 m.kr. og áform eru um 130 m.kr. hagræðingu til viðbótar.
Til að tryggja að fjárhagur sveitarfélagsins standist áfram fjárhagsleg viðmið og koma í veg fyrir að sveitarfélagið lendi í fjárþröng og geti ekki staðið skil á afborgunum lána, launum, launatengdum gjöld og öðrum skuldbindingum teljum við ekki annað fært en að fresta tilteknum fjárfestingum sem áformaður voru á árinu 2026 til ársins 2027. Áformuð fjárfesting ársins verður því 410 m.kr. í A - hluta í stað 595 m.kr.
Orkuveita Húsavíkur hyggst áfram framkvæma töluvert mikið og meðal annars að fara í framkvæmdir við Auðbrekku á Húsavík sem kallar á aðkomu jarðvinnuverktaka. Framkvæmdir hefjast senn við nýtt hjúkrunarheimili á Húsavík og Suðurgarð í Húsavíkurhöfn auk þess er sveitarfélagið í sinni stærstu framkvæmd síðari ára með byggingu félagsmiðstöðvar og frístundahúsnæðis við Borgarhólsskóla sem afhent verður við upphaf næsta skólaárs.
Með því að samþykkja þessa tillögu leggjum við okkar af mörkum til að tryggja það að rekstur Norðurþings verði sjálfbær og að sveitarstjórn Norðurþings haldi forræði á fjárhag sveitarfélagsins.

Áki óskar bókað: Áki leggur áherslu á að framkvæmdum við Ketilsbraut 7-9, Stjórnsýsluhús að upphæð 45 m.kr verði haldið á framkvæmdaáætlun 2026 til að verja húsið fyrir skemmdum.
Ingibjörg tekur undir bókun Áka.

3.Trúnaðarmál

Málsnúmer 202512039Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur trúnaðarmál.
Bókað í trúnaðarmálabók.

4.Erindi vegna fasteignagjalda

Málsnúmer 202603067Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur erindi frá Íþróttafélaginu Völsungi vegna fasteignagjalda 2026 vegna Stóragarðs 5 á Húsavík, F-2153365. Upphæð fasteignagjalds og lóðarleigu er 303.825 kr.

Byggðarráð samþykkir að styrkja Íþróttafélagið Völsung um 303.825 kr. á árinu 2026.

5.Erindi frá félagi eldri borgara Raufarhöfn

Málsnúmer 202602037Vakta málsnúmer

Fyrir liggur erindi frá Félagi eldri borgara á Raufarhöfn sem fer þess á leit við byggðarráð að veittur verði styrkur á móti föstum kostnaði við rekstur Breiðabliks. Á móti býður félagið starfsmanni lögbundinnar félagsþjónustu Norðurþings við eldri borgara aðstöðu fyrir starfsemina í Breiðabliki.
Byggðarráð samþykkir að veita Félagi eldri borgara á Raufarhöfn styrk að upphæð 285.000 kr á árinu 2026.
Erindinu er vísað til fjölskylduráðs varðandi þá þjónustu sem félagið bíður fram.

6.Samanburður á orkukostnaði heimila árið 2025

Málsnúmer 202603057Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur til upplýsinga skýrsla Byggðastofnunar um samanburð á orkukostnaði heimila á Íslandi árið 2025.
Lagt fram til kynningar.

7.Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga 2026

Málsnúmer 202603064Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur erindi frá sýslumanninum á Norðurlandi eystra vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu á skrifstofum Norðurþings á Kópaskeri og Raufarhöfn, vegna sveitarstjórnarkosninga 2026.

Að breyttum kosningalögum, sbr. 69. gr. l. nr. 112/2021, er framkvæmdinni nú lýst svo:
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar getur farið fram:
Í húsnæði á vegum sveitarfélags, enda skal sýslumaður að ósk sveitarstjórnar skipa kjörstjóra, sem getur verið starfsmaður sveitarfélags, til þess að annast atkvæðagreiðslu. Heimilt er að ósk sveitarfélags að slíkur kjörstaður sé hreyfanlegur, enda sé jafnræðis gætt við veitingu þeirrar þjónustu.
Byggðarráð staðfestir að vilji er til áframhaldandi samstarfs vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu á skrifstofum Norðurþings á Kópaskeri og Raufarhöfn, vegna sveitarstjórnarkosninga 2026. Sveitarstjóra falið að óska eftir við sýslumann að skipa kjörstjóra vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu á skrifstofum Norðurþings á Kópaskeri og Raufarhöfn.

8.Þjónustukönnun um vinnu- og þjónustusókn

Málsnúmer 202603103Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur til kynningar ný skýrsla Byggðastofnunar um vinnu- og þjónustusókn íbúa landsins. Skýrslan byggir á þjónustukönnun sem framkvæmd var árið 2024 meðal tæplega sjö þúsund íbúa utan höfuðborgarsvæðisins og gefur ítarlega mynd af því hvar íbúarnir sækja vinnu og ýmsa þjónustu.
Lagt fram til kynningar.

9.Fundarboð vegna fulltrúaráðsfundar

Málsnúmer 202603075Vakta málsnúmer

Boðað er til fulltrúaráðsfundar Stapa Lífeyrissjóðs fimmtudaginn 9. apríl nk. kl. 16:30. Fundurinn verður rafrænn.
Byggðarráð tilnefnir Bergþór Bjarnason fjármálastjóra til setu á fundinum og Katrínu Sigurjónsdóttur sveitarstjóra til vara.

10.Fundargerðir SSNE 2026

Málsnúmer 202601039Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 81. fundar stjórnar SSNE sem haldinn var 5. mars s.l.
Lagt fram til kynningar.

11.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202512097Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 995. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 10.mars sl.
Lagt fram til kynningar.

12.Fundargerðir HNE 2026

Málsnúmer 202603056Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 246. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands Eystra frá 4.mars s.l.
Lagt fram til kynningar.

13.Fundargerðir svæðisráðs norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs 2024

Málsnúmer 202403007Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 124. fundar svæðisráðs norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs. Fundurinn fór fram 2. mars s.l.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 09:30.