Erindi frá félagi eldri borgara Raufarhöfn
Málsnúmer 202602037
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 516. fundur - 26.02.2026
Fyrir byggðarráði liggur erindi frá félagi eldri borgara á Raufarhöfn þar sem óskað er eftir styrk til reksturs Breiðabliks.
Byggðarráð Norðurþings - 518. fundur - 23.03.2026
Fyrir liggur erindi frá Félagi eldri borgara á Raufarhöfn sem fer þess á leit við byggðarráð að veittur verði styrkur á móti föstum kostnaði við rekstur Breiðabliks. Á móti býður félagið starfsmanni lögbundinnar félagsþjónustu Norðurþings við eldri borgara aðstöðu fyrir starfsemina í Breiðabliki.
Byggðarráð samþykkir að veita Félagi eldri borgara á Raufarhöfn styrk að upphæð 285.000 kr á árinu 2026.
Erindinu er vísað til fjölskylduráðs varðandi þá þjónustu sem félagið bíður fram.
Erindinu er vísað til fjölskylduráðs varðandi þá þjónustu sem félagið bíður fram.
Fjölskylduráð - 239. fundur - 07.04.2026
Á 518. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað:
Byggðarráð samþykkir að veita Félagi eldri borgara á Raufarhöfn styrk að upphæð 285.000 kr á árinu 2026. Erindinu er vísað til fjölskylduráðs varðandi þá þjónustu sem félagið bíður fram.
Byggðarráð samþykkir að veita Félagi eldri borgara á Raufarhöfn styrk að upphæð 285.000 kr á árinu 2026. Erindinu er vísað til fjölskylduráðs varðandi þá þjónustu sem félagið bíður fram.
Fjölskylduráð þakkar gott boð og leggur áherslu á gott samstarf við félag eldri borgara á Raufarhöfn. Áfram er horft til þess að lögbundið félags- og tómstundastarf fari fram í grunnskólanum á Raufarhöfn, sjálfsagt mál er að einstaka viðburðir fari fram í Breiðabliki í samráði við starfsmann Norðurþings og félags eldri borgara á Raufarhöfn.
Alexander óskar eftir að eftirfarandi verði bókað fyrir hönd M-lista samfélagsins: Mikilvægt er að unnið verði að því að ná sáttum við Félag eldri borgara á Raufarhöfn og að viðræður hefjist á ný um möguleika á nýjum samningi og breyttu fyrirkomulagi.

Sveitarfélagið hefur nýlega samþykkt viðauka að upphæð 5,2 m.kr til reksturs félagsstarfs eldri borgara á Raufarhöfn.