Fjölskylduráð
Dagskrá
1.Öxarfjarðarskóli- Skóladagatal 2026-2027
Málsnúmer 202603144Vakta málsnúmer
Skóladagatöl leik- og grunnskóladeilda Öxarfjarðarskóla 2026-2027 eru lögð fram til samþykktar.
Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi skóladagatal. Skóladagatal verður birt á vefsíðu skólans.
2.Borgarhólsskóli - Skóladagatal 2026-2027
Málsnúmer 202603142Vakta málsnúmer
Skóladagatal Borgarhólsskóla 2026-2027 er lagt fram til samþykktar.
Fjölskylduráð samþykkur fyrirliggjandi skóladagatal. Skóladagatal verður birt á vefsíðu skólans.
3.Frístund - Skóladagatal 2026-2027.
Málsnúmer 202603146Vakta málsnúmer
Skóladagatal Frístundar 2026-2027 er lagt fram til samþykktar.
Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi skóladagatal. Skóladagatal verður birt á vefsíðu skólans.
4.Grænuvellir - Leikskóladagatal 2026-2027
Málsnúmer 202603143Vakta málsnúmer
Leikskóladagatal Grænuvalla 2026-2027 er lagt fram til samþykktar.
Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi skóladagatal. Skóladagatal verður birt á vefsíðu skólans.
5.Tónlistarskóli Húsavíkur - Skóladagatal 2026-2027.
Málsnúmer 202603145Vakta málsnúmer
Skóladagatal Tónlistarskóla Húsavíkur 2026-2027 er lagt fram til samþykktar.
Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi skóladagatal. Skóladagatal verður birt á vefsíðu skólans.
6.Erindi frá félagi eldri borgara Raufarhöfn
Málsnúmer 202602037Vakta málsnúmer
Á 518. fundi byggðarráðs var eftirfarandi bókað:
Byggðarráð samþykkir að veita Félagi eldri borgara á Raufarhöfn styrk að upphæð 285.000 kr á árinu 2026. Erindinu er vísað til fjölskylduráðs varðandi þá þjónustu sem félagið bíður fram.
Byggðarráð samþykkir að veita Félagi eldri borgara á Raufarhöfn styrk að upphæð 285.000 kr á árinu 2026. Erindinu er vísað til fjölskylduráðs varðandi þá þjónustu sem félagið bíður fram.
Fjölskylduráð þakkar gott boð og leggur áherslu á gott samstarf við félag eldri borgara á Raufarhöfn. Áfram er horft til þess að lögbundið félags- og tómstundastarf fari fram í grunnskólanum á Raufarhöfn, sjálfsagt mál er að einstaka viðburðir fari fram í Breiðabliki í samráði við starfsmann Norðurþings og félags eldri borgara á Raufarhöfn.
Alexander óskar eftir að eftirfarandi verði bókað fyrir hönd M-lista samfélagsins: Mikilvægt er að unnið verði að því að ná sáttum við Félag eldri borgara á Raufarhöfn og að viðræður hefjist á ný um möguleika á nýjum samningi og breyttu fyrirkomulagi.

7.Notendaráð fatlaðs fólks í Norðurþingi 2022-2026
Málsnúmer 202208006Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur greinargerð Notendaráðs fatlaðs fólks er varðar Samning Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
Fjölskylduráð vísar þeim hlutum greinargerðarinnar sem snúa að aðgengis og uppbyggingarmálum til skipulags- og framkvæmdaráðs. Greinargerð að öðru leyti lögð fram til kynningar.
8.Umsókn í lista- og menningarsjóð 2026
Málsnúmer 202603121Vakta málsnúmer
Fyrir fjölskylduráði liggur umsókn í lista- og menningarsjóð. Skákfélagið Goðinn sækir um 100.000 kr styrk vegna aðlþjóðlegs skákmóts í Mývatnssveit 19.-22. nóvember 2026.
Fjölskylduráð telur umsóknina ekki eiga við reglur lista- og menningarsjóðs og hafnar því erindinu. Ráðið bendir skákfélaginu Goðanum á að sækja um styrk til byggðarráðs.
Fundi slitið - kl. 10:30.
Hjálmar Bogi Hafliðason, staðgengill skólastjóra Borgarhólsskóla, sat fundinn undir lið 2.
Helga Jónsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri Leikskólans Grænuvalla, Benedikt Þorri Sigurjónsson, fulltrúi foreldraráðs og Ágústa Pálsdóttir, fulltrúi kennara, sátu fundinn undir lið 4.
Guðni Bragason, tónlistarskólastjóri, Arnþór Þórsteinsson, fulltrúi kennara og Rúnar Traustason fulltrúi foreldra, sátu fundinn undir lið 5.
Lára Björg Friðriksdóttir, félagsmálastjóri, sat fundinn undir liðum 6 og 7.
Sunna Mjöll Bjarnadóttir, Forstöðuþroskaþjálfi í málefnum fatlaðra, sat fundinn undir lið 7.