Fara í efni

Byggðarráð Norðurþings

516. fundur 26. febrúar 2026 kl. 08:30 - 09:45 í fundarsal GB5
Nefndarmenn
  • Helena Eydís Ingólfsdóttir formaður
  • Hjálmar Bogi Hafliðason varaformaður
  • Aldey Unnar Traustadóttir aðalmaður
  • Áki Hauksson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bergþór Bjarnason fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Bergþór Bjarnason fjármálastjóri
Dagskrá

1.Landsréttur dómur í máli nr.664 2024

Málsnúmer 202510110Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur krafa Gentle Giants Hvalaferða ehf. á hendur Hafnasjóði Norðurþings vegna niðurstöðu og dóms Landsréttar í máli nr. 664- 2024.

Höfuðstóll kröfu skv. dómsmáli (2018-2023): 36.371.592 kr.
Höfuðstóll kröfu skv. seinna tímabili (2023-2025): 27.863.806 kr.
Vextir af báðum tímabilum: 23.451.830
Málskostnaður með dráttarvöxtum: 3.100.333 kr.

Samtals staða kröfu þann 6. febrúar 2026: 90.787.561 kr.
Lagt fram til kynningar.

2.Erindi frá sóknarnefnd Húsavíkurkirkju vegna fasteignagjalda 2026

Málsnúmer 202602033Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur ósk um styrk frá sóknarnefnd Húsavíkurkirkju.
Safnaðarheimili: Fasteignaskattur kr. 584.505,- lóðagjald kr. 64.650,- Samtals kr. 649.155,-
Kirkjubær: Fasteignaskattur kr. 1.016.490,- lóðagjald kr. 86.700,- Samtals kr. 1.103.190,-

Samtals beiðni um styrk að upphæð kr. 1.752.345.
Byggðarráð samþykkir að styrkja sóknarnefnd Húsavíkurkirkju um 1.752.345 kr. á árinu 2026.

3.Erindi frá sóknarnefnd Raufarhafnarkirkju vegna fasteignagjalda 2026

Málsnúmer 202602055Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur umsókn frá sóknarnefnd Raufarhafnarkirkju um styrk á móti fasteignagjöldum og lóðaleigu Raufarhafnarkirkju (safnaðarheimili).

Styrkbeiðni að upphæð 97.270 kr.
Byggðarráð samþykkir að styrkja sóknarnefnd Raufarhafnarkirkju um 97.270 kr. á árinu 2026.

4.Erindi frá félagi eldri borgara Raufarhöfn

Málsnúmer 202602037Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur erindi frá félagi eldri borgara á Raufarhöfn þar sem óskað er eftir styrk til reksturs Breiðabliks.
Byggðarráð hafnar erindi vegna beiðnar um rekstur á húsnæðinu Breiðabliki á Raufarhöfn.
Sveitarfélagið hefur nýlega samþykkt viðauka að upphæð 5,2 m.kr til reksturs félagsstarfs eldri borgara á Raufarhöfn.

5.Erindi frá Leikfélagi Húsavíkur

Málsnúmer 202602077Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur ósk um styrk að upphæð 300 þ.kr vegna kaupa á hljóðbúnaði.
Byggðarráð samþykkir að styrkja Leikfélag Húsavíkur um 300 þ.kr til tækjakaupa.

6.Umsóknarbeiðni um tímabundið áfengisleyfi

Málsnúmer 202602034Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur ósk um umsögn vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi frá Leikfélagi Húsavíkur vegna leiksýninga í samkomuhúsinu þann 4, 11 og 18. apríl nk. Áætlaður fjöldi gesta er 105 frá 18 ára aldri.
Byggðarráð veitir jákvæða umsögn.

7.Auglýsing eftir framboðum til stjórnar og varastjórnar Lánasjóðs sveitarfélaga

Málsnúmer 202602063Vakta málsnúmer

Til kynningar í byggðarráði er auglýsing eftir framboðum í stjórn og varastjórn Lánasjóðs sveitarfélaga. Frestur til að skila framboðum eða tilnefningum til tilnefningarnefndar rennur út kl. 12 á hádegi föstudaginn 27.febrúar nk.
Lagt fram til kynningar.

8.Tilnefningu fulltrúa Norðurþings í stjórn Markþings

Málsnúmer 202602086Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur ósk um tilnefningu fulltrúa í stjórn Markþings.
Byggðarráð tilnefnir Eið Pétursson sem aðalmann og Ingibjörgu Benediktsdóttir til vara.

9.Fagur fagur fiskur í sjó. Breytt umhverfi í sjávarútvegi og áhrif á sjávarbyggðir

Málsnúmer 202602035Vakta málsnúmer

Samtök sjávarútvegssveitarfélaga boða til Sjávarútvegsfundar fyrir aðildarsveitarfélög, ráðherra, þingmenn, aðila innan sjávarútvegs og aðra áhugasama undir yfirskriftinni: Fagur fagur fiskur í „sjó.“ Breytt umhverfi í sjávarútvegi og áhrif á sjávarbyggðir.

Fundurinn fer fram miðvikudaginn 4. mars kl. 9:30-11:30 og fer fram á Drift, Strandgötu 1, Akureyri.
Lagt fram til kynningar.

10.Úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga 20252026 - Húsavík - Kópasker - Raufarhöfn - Norðurþing

Málsnúmer 202512099Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur til kynningar bréf frá Innviðaráðuneytinu þar sem fallist var á tillögur sveitarfélagsins um sérstök skilyrði (sérreglur) vegna byggðakvóta fiskveiðiárið 2025/2026.
Lagt fram til kynningar.

11.Hverfisráð Raufarhafnar 2023-2026

Málsnúmer 202401123Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð Hverfisráðs Raufarhafnar frá 5.febrúar sl.
Lagt fram til kynningar.

Umsögn Hverfisráðs vegna mögulegs vindorkuvers á Hólaheiði er þegar til umsagnar vegna aðalskipulags Norðurþings.

Erindi nr. 3: Vísað til skipulags og- framkvæmdaráðs.
Erindum nr. 4 og 5: Vísað til Orkuveitu Húsavíkur.

12.Hverfisráð Öxafjarðar 2023-2025

Málsnúmer 202405073Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð hverfisráðs Öxarfjarðar frá 5. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

13.Hverfisráð Kelduhverfis 2023-2025

Málsnúmer 202405020Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð Hverfisráðs Kelduhverfis frá fundi 5. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

14.Fundargerðir SSNE 2026

Málsnúmer 202601039Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 79. og fundargerð 80. frá fundum stjórnar SSNE sem haldnir voru 8.janúar og 5.febrúar sl.
Lagt fram til kynningar.

15.Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2025

Málsnúmer 202412057Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggja fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitafélaga, frá 88. fundi þann 17.október og 89. fundi þann 9.janúar sl.
Lagt fram til kynningar.

16.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

Málsnúmer 202512097Vakta málsnúmer

Fyrir byggðarráði liggur fundargerð 993. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 18.febrúar sl.
Lagt fram til kynningar.

17.Grunnskóli Raufarhafnar - starfsemi

Málsnúmer 202510082Vakta málsnúmer

Á 236. fundi fjölskylduráðs var eftirfarandi bókað:

Fjölskylduráð tekur undir með skólaráði Grunnskóla Raufarhafnar að mikilvægt sé að skólahúsnæðið sé ennþá aðgengilegt og verði vel við haldið. Ráðið beinir því til skipulags og framkvæmdaráðs að sjá til þess að svo sé gert og reglulegt eftirlit verði með húsnæðinu.

Ráðið tekur einnig undir að mikilvægt sé að mokstur og hálkuvarnir séu í forgangi fyrir akstur skólabarna og beinir því til byggðarráðs að brýna það við Vegagerðina.

Fjölskylduráð harmar þá stöðu sem komin er upp en til að tryggja að hægt sé að uppfylla skólaskyldu grunnskólabarna á Raufarhöfn leggur ráðið til við sveitarstjórn að skólahald á Raufarhöfn verði fært í Grunnskóla Öxarfjarðar.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að eiga samtal við Vegagerðina vegna aksturs skólabarna milli Raufarhafnar og Öxarfjarðar enda yfir Hólaheiði að fara.

Fundi slitið - kl. 09:45.